Rugl dagsins er: Hæ hó
Posted on October 31st, 2003 at 10:02 pm by tommi
Rugl dagsins er: Fór í
Posted on October 30th, 2003 at 3:49 pm by tommi
Rugl dagsins er: Fór í banka, ekki banka
Jebb og jæja, Tomminn horfði á bráðskemmtilegan knattspyrnuleik í gærkvöldi. Þar áttust við Svartburn og Lifrapollur FC. Leiknum lauk með sigri Lifrapollsins 4-3, eitt rautt spjald, klúðruð vsp og nóg af hasar helvíti fínt bara.
Nú þarf Tomminn að fara að græja þessa blessuðu íslensku ritgerð pruump. Er byrjaður að lesa þessa blessuðu bók um þenna mikla prest Jón Steingrímsson sem kenndi drykkju og svalli ríkra bænda um Skaftáreldana miklu. Hann áleit að hinn almáttugi Guð væri með þessu að refsa bændunum sem bæ ðe vei eyddu u.þ.b. 4000 fiskgildum í brennivín. Hehehe alltaf er landinn samur við sig.
Jæja, best að fara að byrja á þessu bulli. Það má svo geta þess að Tomminn hyggur á leiðangur til Gæa Hadda og spúsunar hans og munu brátt koma myndir af litlu prinsessunni henni Aldísi Ylfu hér inn 
Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Hinn alræmdi
Posted on October 29th, 2003 at 1:45 pm by tommi
Rugl dagsins er: Hinn alræmdi geimglæpon Jabbi de Hött er væntanlegur til landsins núna með hálf fimm fluginu frá Guatemala. Lögreglan hefur mikinn viðbúnað vegna komu Jabba og hefur hún aukið löggæsluna í kringum Húsdýragarðinn til mikilla muna þar sem að uppáhalds matur Jabba eru hrá klaufdýr.
Aumingja Tommi litli:

Jamm þetta er semsagt hægri fótur Tommans allur bólginn og blár. Ouch ouch ouch.
Vaknaði eldsnemma í morgun í skólann og náði meira að segja að halda mér vakandi í gegnum allan STÆ 223 tímann. Það verður að teljast þónokkuð afrek þar sem að svona röfl og maus um þríhyrninga er vægast sagt leiðinlegt. En Tomminn er reyndar að gera góða hluti í þessum áfanga. Svo var það EFN 203 hjá títtnefndri leðurlesbíu og GUÐ MINN GÓÐUR segi ég nú bara, Tomminn virðist loksins vera farinn að skilja þetta bull sem verið er að brasa í. LOKSINS. Sameindir, nifteindir, rafeindaflutningur, þetta er alltsaman farið að meika smá sens. Svo var það ENS 403 hjá hinum skemmtilega United aðdáanda Magnúsi Ingimundarsyni þar sem að Tomminn og Pétur þurftu að halda áfram að skrifa um sjómennsku og áhrif hennar á unga og vitlausa menn hehehe.
Svo var það varalið Man Jú sem lagði þrotabú Leeds með 3 mörkum gegn 2 í framlengdum leik á Elland Road. Það voru hinir gríðarsterku varamenn Júnæted sem kláruðu þetta. Deivid Bellíjón, Dedlí Díegó (Forlan) og Eiríkur Dúmbó Dúmbó sem skoruðu en Roque Jr sem lítur út eins og krakkhaus skoraði bæði mörk Leeds Víhaa.
Svo er það bara ljós og ræktin á eftir. Verð víst að hita upp með því að hjóla eins og einhver hommi. Heimski hægri fótur.
Þangað til næst…..
Rugl dagsins er: By the
Posted on October 28th, 2003 at 2:30 pm by tommi
Rugl dagsins er: By the way
Ef einhverjir vilja adda mér á msn þá er netfangið tfk@mi.is
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: Skaflaskelfirinn er
Posted on October 28th, 2003 at 2:26 pm by tommi
Rugl dagsins er: Skaflaskelfirinn er mættur
OOOOOJJJJ, Tomminn þurfti að skafa af drossíunni í morgun sér til lítillar kátínu. Andskotinn hafi það, Tomminn hugsaði með hryllingi til félaganna uppí Breiðholti sem eflaust þurftu að grafa sig út úr sköflunum, Hörður, Dabbi og Gilbert, aumingja þið.
Tomminn er alveg örþreyttur þessa stundina sökum mikillar andvöku nætur. Jamm, Tomminn lá bara andvaka í alla nótt, reyndi að lesa To Kill A Mockingbird en náði bara 2 köflum og fór svo bara að telja tær og bólginn fót. Náði samt að rífa mig á fætur fyrir allar aldir þökk sé honum Gaua mínum sem dúnkaði hressilega á hurðina í morgun. Mætti í stærðfræði og gat meira að segja virkjað heilann í að reikna nokkur marggildisdæmi. Fór svo heim til Rúnu gellu til að leggja mig en hún neiddi mig til að skutla sér í skólann þannig að svefn var ekki á dagskránni á þeim bænum. Horfði bara á Ice Age og borðaði Júmbó langloku og drakk einn bauk af Coke. Fór svo í Íslensku þar sem að kagglinn rétt svo gat haldið sér vakandi á meðan snillingurinn hann Guðlaugur romsaði út úr sér heilum helling af fróðleik um nýrómantísku stefnuna á Íslandi á átjándu og nítjándu öld. GEISP. Svo fór Tomminn niður á ESSO við Geirsgötu til að láta athuga olíulekann á bílnum og redduðu höfðingjarnir á þeim bænum því með mikilli lagni, ég meina það krefst lagni að skrúfa tappann fast í pönnuna aight.
Svo var það bara Borgarbókasafnið til að ná í bókina um séra Jón Steingrímsson því Tomminn hefur ákveðið að skrifa ritgerð um Skaftáreldana og hananú.


Hér eru svo myndir af Rúnu gellu og litla sæta frænda mínum honum Viktori Helga Benediktssyni.
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: Velkominn í
Posted on October 27th, 2003 at 11:46 pm by tommi
Rugl dagsins er: Velkominn í 10.000 feta klúbbinn
Jæja, Tommsterinn var að koma úr bolta í Fylkishöllinni og því miður verð ég að segja að Tomminn kom ekki óskaddaður úr þessum bolta. Nei, í einhverju pirrings kasti yfir að missa boltann of langt frá mér þá gekk Tomminn full vasklega fram og sparkaði á eftir boltanum þegar hann átti ekki möguleika á að ná honum. Sköflungur Tommans skall all harkalega í sköflung mótherjans og kom Tomminn verr út úr þessum viðskiptum. Allur að bólgna upp þegar þetta er skrifað og Tommanum kvíður mikið fyrir að vakna í fyrramálið og sjá ljótann marblett á löppinni. En annars var boltinn fínn, Tomminn náði að sigra nokkrum sinnum og setja nokkur mörk og Íbbi náði að klúðra nokkrum sinnum hehehe.
Egill var þarna og var í liði Tommans.
Einnig Atli 
og líka fyrrnefndur Ívar Karl
Jamm það voru átök
Svo var Gaui líka kominn heim og sestur í CM með í vörinni og kók við hendina. Thats life.
Annars verð ég líka að minnast aðeins á Körfuboltaliðið Snæfell úr Hólminum. Þeir halda úti ansi skemmtilegri bloggsíðu sem er ansi skemmtileg lesning. Haffi Gunn (litli frændi hans Gaua) Hlynur Bærings (ex Grundari) og fleiri góðir kappar gefa manni hér tækifæri á að skyggnast á bakvið tjöldin hjá svona líka gríðarsterku körfuboltaliði (3ja sæti þegar þetta er skrifað).
Jæja, það er best að fara að halla sér bara.
Þangað til næst…….
Rugl dagsins er: DOH Æi
Posted on October 26th, 2003 at 1:12 pm by tommi
Rugl dagsins er: DOH
Æi já, ég gleymdi einu hérna áðan. Hel*#%& “#%%# #%#% F#%( Djös HelVÍtis AndskOTanS Heimska Man Utd að tapa. UUUURRRRRR, Tomminn lenti í mikilli sálarkreppu út af þessu í gær. Tomminn vildi ekki láta á því bera að hann væri geðveikt pirraður út af leiknum í gær og þess vegna brosti hann bara þegar hann var í sundi með Rúnu og Ninna en inní sér ólgaði hann af reiði. Djöfulsins aular og aumingjar og Heimska helvítis Fúllhamm.
Svona ég vona að þetta sé nóg og að mínir menn girði sig í brók fyrir næsta leik.
Þangað til næst……
Rugl dagsins er: Megaman snýr
Posted on October 26th, 2003 at 11:57 am by tommi
Rugl dagsins er: N’Súnk kemur
Posted on October 25th, 2003 at 12:39 pm by tommi
Rugl dagsins er: N’Súnk kemur saman á ný: Nú berast þær fregnir frá Hólývúdd að strákabandi N’Súnk ætli að koma saman á ný og nú með nýjum meðLIM, þar sem að Jústinn Trévatn ætlar að einbeyta sér að sínum sólóferli hafa strákarnir í N’Súnk fengið til liðs við sig ungan Íslending sem er kunnur fyrir gríðarlega góða JT takta. Þetta er enginn annar en Doddi Finnbjargar aka Folinn sem kemur til með að trylla 12-14 ára stelpur um allan heim.
Tomminn er að stelast til að blogga í vinnunni hehehe. Nú er það bara spurning hvernig fer í lengjunni hjá kallinum. Ég efast reyndar um að ég nái að skrensa út annan 30 kall en maður veit aldrey.
svo er það bara rólegheit í kvöld hjá kallinum, kaffi til Hrottans eða eitthvað gáfulegt
Þangað til næst…..
Rugl dagsins er: Kósý fan
Posted on October 25th, 2003 at 1:51 am by tommi
Rugl dagsins er: Kósý fan tútti
Jamm, ég og Ninnsterinn vorum að koma af Kill Bill og ég verð að segja að ég varð ekki fyrir vonbrigðum með þessa ræmu, Tarantino stendur sko vel fyrir sínu og Tomminn getur mælt með þessari. Svolítið blóðug en ótrúlega svöl mynd.
Ég og Ninnster fórum á Stælinn áðan og þar var Tryggvi nokkur Hadda með í för en hann er semsagt bróðir hans Gæa Hadda sem hefur nokkrum sinnum verið minnst á hér. Það væri ekki frásögum færandi nema að þessi snilldar mynd náðist af kallinum og verð ég hreinlega bara að láta hana flakka hér hehehe:

Svo voru Siggi og lufsan hans í heimsókn og horfðu á Idol með okkur þar sem að gamli bekkjarfélagi minn hann Kalli stóð sig með prýði og vann

Þangað til næst…..