Leikmaður dagsins er: Louis Saha
Posted on January 31st, 2004 at 3:06 pm by tommi

Leikmaður dagsins er: Louis Saha

Þetta kemur nú kanski ekki svo mikið á óvart er það nokkuð…..

My inner child is sixteen years old today

My inner child is sixteen years old!

Life’s not fair! It’s never been fair, but while
adults might just accept that, I know
something’s gotta change. And it’s gonna
change, just as soon as I become an adult and
get some power of my own.

How Old is Your Inner Child?
brought to you by Quizilla

Þangað til næst……..

Lag dagsins er: Megalomaniac með
Posted on January 29th, 2004 at 9:15 pm by tommi

Lag dagsins er: Megalomaniac með Incubus

Það var annað sem ég var að pæla í, hugleiðingar sem hafa pínu nagað mig undanfarið, alveg síðan í sumar, er ég FM-hnakki????

FM-hnakkar eru fyrir mér dúddar sem keyra um á semi sportbílum, ljósabrúnir, með brilliantín í hárinu í fötum frá Mótor eða Park hlustandi á Sjúgarbeibs, Bíoncí Knówls og Jöstin Timberleik.
Þó að tónlistarsmekkur minn hafi oft á tíðum talist frekar víðtækur þá hef ég aldrei gefið mig út fyrir að hlusta á svona sellát sorp sem var nefnt hér á undan og mín uppáhaldstónlist er yfirleitt ekki spiluð á FM957.

En Tökum hérna nokkur dæmi:

FM-hnakkar vs Tommi
FM-hnakkar fara í ljós - Tommi fer stundum í ljós
FM-hnakkar fara í ræktina - Tommi hefur jú einhverntímann sést þar
FM-hnakkar eru með filmur í bílunum sínum - DOH, Tommi er jú með filmur í Rollunni en þær voru þegar ég keypti hana
FM-hnakkar hlusta á FM tónlist - Tommi vildi ekki einusinni láta það helvíti heyrast í jarðarförinni sinni og hananú
FM-hnakkar fara oft í klippingu - Tommi fer í klippingu á 1 til 2 mánaða fresti
FM-hnakkar eru með gel í hárinu - Tommi er jú stundum með svoleiðis sull í hársverðinum
FM-hnakkar raka sportröndina ofl - No comment
FM-hnakkar eru með keilu í bílnum - Tommi fer annað slagið í keilu
FM-hnakkar blasta græjurnar á Laugarveginum - Tommi blastar græjurnar á Vatnaleiðinni þegar hann er einn í bílnum og syngur þá með hátt og snjallt.
FM-hnakkar eiga vitlausar kærustur - Tommi á ekki kærustu
FM-hnakkar versla í Mótor - Tommi hefur jú keypt einstaka flík þar
FM-hnakkar dýrka R og B - Tomminn er nýlega búinn að uppgvötva fyrir hvað R og B standa hehehe

Tökum nokkur sjóndæmi:

Þetta eru myndir af mér og Ninna sem hefur jú verið sakaður um það sama.

Jæja, þið verðið hreinlega bara að dæma sjálf aight. Persónulega tel ég sjálfan mig ekki tilheyra þeim hópi sem kallast FM-hnakkar en ég skal samþykkja að vera svona, tjah semi hnakki hehehe

Þangað til næst…..

Afmælisbarn gærdagsins var: Begga Jobba
Posted on January 29th, 2004 at 8:43 pm by tommi

Afmælisbarn gærdagsins var: Begga Jobba

Og já, eitt enn, Berglind Rósa Jósepsdóttir átti afmæli í gær og vill Tommi óska henni og hennar velvildarmönnum til hamingju með daginn. Betra er seint en aldrei aight.

Þangað til næst…..

Blað dagsins er: DV Þegar
Posted on January 29th, 2004 at 8:39 pm by tommi

Blað dagsins er: DV

Þegar ég var að fletta yfir DV í dag þá brá mér heldur betur í brún þegar ég rakst á þessa fyrirsögn á næst öftustu síðu. “Leoncie reið Magnúsi Erni”. Þetta varð þess valdandi að hinn grunnhyggni ég þurfti náttúrulega að lesa þessa frétt því að hún hafði fangað athygli mína svona nett. Þegar ég byrjaði að lesa þá komst ég að því að hún Leoncie okkar hafði nú ekki riðið Magnúsi Erni í þeirri merkingu heldur var hún reið við hann út af einhverju kynþátta bulli (Held hún þyrfti að eignast líf) sem er engan veginn rétt. Tökum bara sem dæmi að ef Sigga Jóns frá Borðeyri sem er tvífráskilin húsmóðir á fimmtugsaldri, væri að semja svona tónlist á skemmtarann sinn og syngjandi lög um fimmtugustu og sjöttu ástina í lífi sínu, pólska fiskvinnslumanninn hann Hector, og semjandi lög hvernig hún ætlaði að tæla hann Hector sinn og hvernig hún finndi hitann í klofinu á sér o.s.frv. þá væri líka gert alveg jafn mikið grín að henni og Leoncie því það sem hún er að gera er bara alveg fáránlegt bull. Hún titlar sig tónlistarmann og er svo fúl af því að hún fær ekki þá athygli og virðingu sem henni finnst hún eiga skilið. Svo var hún eitthvað að monta sig af því við hann Grísla Martein að hún væri að fara að taka þátt í breskum “tónlistarþætti”. Djíses kræst hvað henni er ekki viðbjargandi greyinu, maður veit bara ekki hvort maður á að hlæja eða gráta. Það má svo geta þess að þessi breski tónlistarþáttur var þátturinn EuroTrash sem einmitt tekur fólk eins og hana og gerir grín að því.

Þangað til næst……

Frétt dagsins er: Þessi hér
Posted on January 28th, 2004 at 11:28 pm by tommi

Frétt dagsins er: Þessi hér

Var ekki kominn tími á Þetta? Þetta er svona alls staðar ég Evrópu nema í Englandi og vonandi að þetta eigi eftir að reynast vel aight

Þangað til næst……..

Tölvugúrú dagsins er: Soffi Jó
Posted on January 28th, 2004 at 9:03 pm by tommi

Tölvugúrú dagsins er: Soffi

Jó jó jó, moþer fokker in ðe hás of pein marr, maður missir bara saur við þetta helvíti.

Soffi er búinn að vera að redda manni hérna og fær þúsund þakkir fyrir kiss kiss.

Mætti kl átta í morgun í skólann í Stæ, geisp. skil ekki af hverju maður er ekki virkari í þessu helvíti hmm. Svo var það hin reglubundna eyða sem var eytt í lestur á bókasafninu, reyndi að lesa mér aðeins til um Linux stýrikerfi og rifja upp það sem maður hafði nú lært í þessu helvíti, svona eins og grep skipunina ofl. Svo var það spænska hjá hinni sætu Carmen, fínasti tími þar þó að maður hafi nú verið hálf þreyttur í skólanum. Ég og onkel Benz fórum nebblilega í Lúxussalinn á LOTR Return of the King. Ég var nú að fara á hana í þriðja skiptið og ekki fær maður leið á henni enn. Enda snilldarmynd ehaggi.

Jeeeeeeeeeeeeeessssss helvítis tussuhóran þín maður, djöfull er þetta fokking ógeðslega tussu flott.

Arsenal búnir að setja félagsmet með því að kaupa einhvern gæa sem hefur unnið það sér helst til frægðar að hafa látið einhvern gæa bíta í eistun á sér við að fagna marki, lesið hér.

Mi casa es su casa eða eitthvað svoleiðis, comó estás?

Ble ble og bla bla

Þangað til næst…….

Sjónvarpsstöð dagsins er: Skjár Einn
Posted on January 27th, 2004 at 1:47 pm by tommi

Sjónvarpsstöð dagsins er: Skjár Einn fyrir að sýna Survivor ENDALAUST SNIIIIIILLLLD

Jæja, Tomminn er veikur í dag og enginn skóli, þá er bara að horfa á björtu hliðarnar og glápa á Survivor á Skjá einum, gott framtak þar. Fín uppbygging fyrir Survivor All Stars.

Þetta er Batti að sleikja rass hehehehe, og Heisi ávallt getnaðarlegur hmm, veit samt ekki alveg hvað málið er með þessa rollu þeirra.

Þangað til næst……

Beikon dagsins er: Beikonið í
Posted on January 26th, 2004 at 12:30 am by tommi

Beikon dagsins er: Beikonið í frystinum hjá mér og Big Goj

Loksins segi ég nú bara:

Þangað til næst……

Aumingjahommi með hor dagsins er:
Posted on January 26th, 2004 at 12:03 am by tommi

Aumingjahommi með hor dagsins er: Deadly Diego Forlan

Búsetusaga Tommans:

Nesvegurinn:
Þegar manni var potað organdi í heiminn bjó ég á Nesvegi 13 í Grundarfirði, ég man nú voðalega lítið eftir þessu, eiginlega ekkert. Maður telur sig kannski muna eitthvað en það er örugglega eitthvað sem maður hefur séð á ljósmyndum og soliz. Það var ein sérstaklega góð sem ég man eftir þar sem ég er að róta niður öllum kasettunum hans pabba c.a. 2 ára gamall en kasettur þessar voru alltaf raðaðar mjög reglulega í c.a 40-60 cm hæð. hehehe BIG MISTAKE.

Fagurhólstúnið:
Þangað flutti ég c.a. 5 ára eða eitthvað soliz. Þarna eignaðist ég minn fyrsta vin sem var hann Árni síðar kenndur við Tanga. Þarna lékum við okkur í vörubílaleik í brekkunni og undum okkur vel. Í einu ferðalaginu með Árna vorum við að rölta í mýrinni fyrir ofan þar sem elliheimilið stendur núna og rákumst þá á þessa forláta tjörn sem þarna var. Ég var nú snöggur að slá eign minni á þetta þar sem að ég fann hana fyrstur. Við Árni fórum sigri hrósandi heim til hans til að tilkynna öllum að Tommatjörn væri fundin og ætluðum að rukka aðgang að henni. Við urðum frekar hnípnir þegar Eyfi pabbi hans Árna tjáði okkur að þessi tjörn héti nú Steinatjörn og væri eign allra í Grundarfirði. Við Árni gengum hnípnir í burtu, veltandi fyrir okkur hvaða lukkunar pamfíll þessi Steini væri sem hefði nú verið á undan okkur.
Þegar ég bjó þarna kom líka Ninni í heiminn. Stoltur stóri bróðir rúntaði með krílið um alla íbúð og tókst svo að lokum að velta vöggunni í beygjunni inní svefnherbergi. Ninna varð nú ekkert svo mikið meint af, held ég.

Hlíðarvegurinn
Litla kjallara íbúðin varð fljótt of lítil þar sem að fjölskyldunni hafði fjölgað um einn þannig að það var fjárfest í húsi á Hlíðarveginum. Þetta var Hlíðarvegur 13 og þarna var örstutt að hlaupa í skólann. Ég var þá að hefja skólagöngu mína þarna fullur tilhlökkunar óafvitandi hvað hún ætti eftir að endast lengi. Þarna fékk ég mitt eigið herbergi og alles og þarna kynntist ég mínum nánasta vini og félaga sem á þeim tíma bjó einnig á Hlíðarveginum. Hörður og ég lékum okkur oft saman enda með sameiginlegt áhugamál um Star Wars kalla söfnun og fleira. Eina sem ég man eitthvað eftir var að þarna að morgni 2 nóvember 1983 þegar ég varð sjö ára (gæti skeikað einu ári til eða frá) vaknaði ég eldsnemma um morguninn til að vitja pakkans sem lá á náttborðinu mínu. Gríðarleg stemming að rífa utan af fyrsta vasadiskóinu mínu og skella kasettunni með einhverjum break lögum sem Valdimar frændi hafði tekið upp fyrir mig. Þarna vorum við Hörður líka nokkrum klukkustundum í vídjó gláp en á þeim árum var videotæknin að ryðja sér til rúms og það þótti mikið sport að fá lánað videotæki hjá einhverjum sem hafði fjárfest í svoleiðis grip og glápa úr sér glyrnurnar. Þarna var líka videoleiga á horninu á Hlíðarveginum og oftar en ekki fórum við Hörður þangað til að ná okkur í nýjustu He-man þættina og hina stórgóðu mynd Krull.

Grundargata 76
Mitt annað heimili á þessum tíma var hjá pabba mínum á Grundargötunni. Þar átti ég líka mitt eigið herbergi og fullt af dóti hjá pabba, ekki skemmdi líka fyrir að Gummi Þorra átti heima við hliðin á húsinu hans pabba og síðar flutti líka Hörður þangað. Þarna var mikið brallað og ég kem að því síðar.

Söðulsholt
Þegar ég var 9 ára fengu mamma og Gústi þá asnalegu hugmynd að rífa mann upp frá öllum vinum og kunningjum og flytja í sveit. Andskotinn að manni fannst því það að byrja í nýjum skóla var ekki það vinsælasta hjá litlum og saklausum ljóshærðum peyja. En þetta var nú ekki eins slæmt og ætla mætti og þarna varði ég restinni af grunnskólagöngunni og kynntist þar mörgum góðum vinum. Þar bera HÆÐST að nefna Big Goj sem er núna meðleigjandi minn. Einstaklega góður drengur þó hann líti ekki þannig út hehehe (alls ekki illa meint). Þarna fórum við alltaf með rútu í skólann nema síðasta veturinn minn þarna þar sem að ég var á heimavist. Þarna á ég margar góðar minningar. Þarna var maður í 2 hljómsveitum og læti.
Í Söðulsholti brallaði maður nú ýmislegt en þá aðalega með Ninna einhversstaðar í afturdragi. Oft fór maður á næsta bæ en þar var Mundi frændi búsettur sem og amma mín og afi, þau Margrét og Guðmundur í Dalsmynni. Þar var mikið brallað enda fínar brekkur til að láta Stiga sleðann þeisast niður á gríðarlegri ferð að manni fannst.

Grundargata 76
Á sumrin var ég yfirleitt hjá pabba í Grundarfirði og árið sem maður fermdist var manni troðið í rækjuvinnsluna með hinum krökkunum til að vinna sér inn einhvern pening. Fljótlega uppúr því var farið að fikta við brennivínið og þótti það ægilega töff. Manni fannst maður vera ægilega harður drekkandi Íslenskt brennivín blandað í ÍsCola (mig hryllir við tilhugsuninni) uuuusss.

Heimavistin á Akranesi
Eftir grunnskólann var haldið á skagann ásamt öllum hinum félögunum. Þar hafði maður nú aðrar hugmyndir en að setjast á skólabekk. Þar var mikið djammað og djúsað og var maður yfirleitt fullur á fimmtudögum, föstudögum, laugardögum og sunnudögum. Úff, þetta voru asnalegir tímar og þeir falla yfirleitt allir í einhverja móðu. Einu atriði man ég þó sérstaklega eftir en hún inniheldur Vigga frá Grundarfirði. Það þótti mikill og skemmtilegur siður að fremja gjörning sem kallaðist rokkarapiss. Þessi gjörningur lýsir sér þannig að gerandinn brúkar mígildi af náttúrunnar hendi með því að girða buxurnar alveg niður að hælum og pissa, helst upp í vindinn. Þessi siður varð til á útihátíðinni á Eldborg “92. En þannig var mál með vexti að við Viggi vorum að rölta niður í bæ frá vistinni og vorum komnir nokkuð áleiðis, þar sem rúnturinn snýr alltaf við. Við erum vel við skál og Viggi fær þá snilldar hugmynd að brúka eitt stykki rokkarapiss þar sem hann stendur. Þetta fannst mér fyndið og hvatti hann ákafur áfram þar sem að enginn bíll var sjáanlegur. Viggi girðir niður um sig og labbar út á miðja götu og byrjar að míga. Þegar Blundi (nickneimið hans Vigga á Skaganum) var hálfnaður með rokkarapissið kemur allur helvítis rúnturinn svona 20 - 30 bílar og Viggi stendur á miðri götunni með buxurnar á hælunum og mígur og stoppar alla umferð í leiðinni. Mjög fyndið.

Mörkin 8 í Rvík
Ég byrjaði í Iðnskólanum haustið 94 held ég, Þá bjó ég hálfann vetur í mörkinni. Asnalegur tími sem einkenndist af peningaleysi og strætó ferðum. Þarna upplifði ég fyrstu ástarsorgina fljótlega eftir áramótin 94/95 og þá flutti ég til Helgu Frænku í Kópavoginum.

Hraunbraut 2 Kóp
Hjá Helgu og Valda var ég í góðu yfir læti en skólinn sat eitthvað á hakanum fyrir djammi og djúserí. Þarna var maður mikið með Jóni, Gubba, Arnþóri og Magga Satan (dont ask). Landakaup og drykkja voru í hávegum höfð á þessum tíma.

Grundargata 76
Eftir þetta hætti ég í skóla enda voru einkunnirnar ekki að gera sig fyrir mig. Þá var flutt aftur til Grundarfjarðar og fjárfest í mótorhjóli, ekki gáfulegasta fjárfestingin en vei ó hei sú skemmtilegasta. Þarna kynntist ég Bjössa fyrir einhverja alvöru því hann átti líka mótorhjól. Þegar hann var í landi vorum við alltaf á eyrunum eða að þenja hjólin okkar, aðallega hjólið hans því mitt var oftar bilað hehehe. Þar kynntist ég líka henni Rúnu litlu og málin þróuðust þannig að ég flutti norður á Akureyri til að geta verið hjá henni.

Grundargata 15
Ég bjó hjá Önnu og Jobba um haustið sem ég og Rúna vorum aðskilin. Það var rosalega næs enda er þetta indælisfólk. Þarna spilaði CM stóran hluta af tilverunni þess á milli að maður mætti í vinnuna niður í Fiskvinnslu.

Verksmiðjuhverfið á Ak
Þarna leigðum við stúdíóíbúð hjá Palla á Hömrum og ég vann fyrir leigunni með leiðindastarfi í Rúmfatalagernum. Piff, skítaíbúð, skítabíll, skítadjobb. Þá var alltaf gott að koma til Grundarfjarðar.

Bakkahlíðin á Ak
Ekki góður tími þarna, það var alltaf kalt í svefnherberginu og okkur leið ekki vel þarna punktur.

Furulundur á Ak
Gríðarleg stemming þarna. Bjössi Kolla leigði með okkur. Fínn meðleigjandi og einstaklega góður nágranni sem maður átti í Ellen sem var spölkorn frá. Þetta var góður tími og mikið stuð. En þetta var síðasti veturinn á Akureyri og eftir þetta lá leiðini í borg óttans.

Njálsgatan
Stutt frá skólanum og eiginlega stutt frá öllu. Það er mikill munur að búa á 101 svæðinu. Nýr bíll var keyptur á þessum tíma og ég hóf skólagönguna að nýju og gekk bara bærilega. Það var oft partý á Njálsgötunni og maður tók oft upp á því að sofna vel fyrir miðnætti og komast ekki útúr húsi ehe.
En svo gerðust súrir hlutir og Tomminn þurfti að flytja einu sinni enn.

Álfhólsvegurinn
Hérna bý ég núna með honum Gaua mínum og gengur sambúðin bara vel fyrir utan vandamál með þrif hehehe, ráða einhverja kellingu í þetta ehaggi. Hérna erum við Gaui með Stöð 2 og Sýn, fótboltagláp og tölvuhangs með meiru. 1944 spilar stóran þátt í tilveru okkar og er eina tengingin okkar yfir í heimaeldaðan mat.

Þetta eru svona helstu staðirnir sem maður hefur búið á. Svo á milli þess er maður oftast í Grundarfirði og er þá oft hjá mömmu á Fagurhólstúni 15 og pabba á Grundargötunni.

Annars er minnið orðið svo gloppótt að það gæti alveg eins verið að maður sé að gleyma einhverju, vona ekki.

Jæja þetta er orðinn ágætis pistill. Fyrir þá sem nenntuð að lesa þá lofa ég að þetta verður ekki oft svona langt aight.

Þangað til næst…….

Brandari dagsins er: Hafiði heyrt
Posted on January 25th, 2004 at 7:54 pm by tommi

Brandari dagsins er: Hafiði heyrt um Kínverjann sem var svo gráðugur að hann borðaði með prjónavél Bwahahahahahahahaha

Það eru komnar inn nýjar myndir frá helginni. Blogga meira seinna er farinn í bolta, og já eitt enn, Man Jú vann Nördhampton 3-0 og Tomminn getur skafið skeggið af andlitinu af sér víhí

Þangað til næst……

« Previous Entries