Fótboltaskór dagsins er: ADIDAS DELTANOVA
Posted on February 27th, 2004 at 2:52 pm by tommi

Fótboltaskór dagsins er: ADIDAS DELTANOVA TRX TF

Jæja, snillingurinn ég fór á þessa fyrstu utandeildaræfingu með hinu virðulega félagi FC FIST. Var bara á innanhússkónum mínu með mjög svo flötum botni. Æfingin var virkilega skemmtileg og stóð ég mig bara ágætlega fannst mér hrmpf. En svo vildi svo óheppilega til að flatbotna innanhússkórnir mínir voru full sleipir á gervigrasið þannig að aumingja ég tognaði aftan í kálfanum hægra megin. Vona að maður verði kominn í stand fyrir sunnudaginn. Þetta varð þess valdandi að ég rauk til og keypti mér gervigras skó hjá Reyni í Boltamanninum sem gaf mér fínan afslátt hehehe. Maður verður nú að nýta sér samböndin er það ekki.

Fór í Bíó með Ninna og Magga í gær, Along came Polly, ekta mynd fyrir okkur því við lágum í krampa allan tímann. Ben Stiller er kóngur í svona myndum, algjör snillingur, eins var Philip Seymore Hoffmann helvíti fyndinn líka.

Gústi A, mætir í bæinn um helgina og væntanlega gistir hjá mér, hann og vinur hans. Vonandi að þeir félagarnir fari nú ekki að draga eihverjar tjellingar heim, neee segi sona.

Föstudagur í dag og hér kemur smá slúður í tilefni dagsins:

Heyrst hefur……

að Soffi hafi rekist á Tóní Bler í London og bitchslappað hann og rétt svo komist undan á hlaupum í gegnum holræsa kerfi borgarinnar, enda Soffi löngum verið þekktur fyrir gríðar árangur í Kvernárhlaupinu hérna í denn.

að Rutlan sé hæst ánægð með þessa framþróun mála.

að hinn tröllvaxni Heisi sé í aukavinnu fyrir Svefn og Heilsa að prófa yfirdýnur með gríðar góðum árangri.

að Batti Pálma sé að einoka heimilsdýrið þeirra Heisa og Heisi sé ekki sáttur með þetta.

að Hemmi Geir hafi spilað í 3 sekúndur í leik um daginn og staðið sig með prýði.

að Laugi Jónasar hafi gert stóran samning við McDónalds um að vera andlit fyrirtækisins í Asíu.

að Maggi Jobba sé enn einusinni búinn að slá því á frest að flytja út frá mömmu sinni, afsökunin að þessu sinni er sú sama og síðast eða að nýja húsið hans sé ekki tilbúið.

að Tryggvi Hadda og Kári G ætli að stofna farandleikhús sem mun nefnast, ðe travelling klávns

að Dabbi Kvistur sé búinn að gefa nærbuxnabransann upp á bátinn og hyggji á blússandi frama sem breik dansari í Fjarskanistan.

að Steini Jobba sé farinn að hanna bækur með fyrimyndina “hvar er Valli” í huga. Hvar er Steini vol 1 hefur þegar selst í 5800 eintökum og nýtt upplag er í prentun

að þessar pjásur séu búnar að stofna fylgdarþjónustu fyrir bændur.

að það sé frekar lítið að gera hjá þeim.

að bændurnir vilji frekar hvorn annan.

að María Elísabet sé flutt burt frá Vestfjörðum vegna ásakanna um kynferðislegt ofbeldi gagnvart rútubílstjórum.

að María Elísabet beri af sér allar sakir.

að Eyrún Björk hafi verið numin brott af aröbum, síðast sást til hennar á árshátíð um síðustu helgi (ÓSTAÐFEST).

og að lokum að El Ninnio hafi skorið svo marga þorska á háls yfir ævina að hann hafi gengið í sértrúarsöfnuð í Alaska.

Þangað til næst……

Lærdómshestur dagsins er: Guðrún Jóna
Posted on February 25th, 2004 at 2:36 pm by tommi

Lærdómshestur dagsins er: Guðrún Jóna Jósepsdóttir

Var að koma úr Keflavík, semsagt að skutla Soffalingnum á völlinn, kallinn var að fara til London, það vottaði fyrir smá öfundsýki en ég er viss um að það verður miklu skemmtilegra hér hehehe. Reikna með að fara á útiæfingu í fótbolta í kvöld brrrr. Með Baldri og Atla. Spurning hvernig þetta helvíti kemur út.

Eitthvað voru menn nú hægir að hrannast upp að mér og bjóðast til að lána mér vasareikni. Ég tími ekki að kaupa mér þetta helvíti og reikna nú með að annarhver einstaklingur eigi svona stykki, þannig að ef þú lumar á svona grip sem þú ert ekki að nota værirðu þá til í að lána mér þetta helvíti, þarf að geta reiknað sin, cos, lógarythm og svoleiðis gút sjitt. Ekki vera feimin.

Þangað til næst…….

Keppni dagsins er: Champions League
Posted on February 24th, 2004 at 7:11 pm by tommi

Keppni dagsins er: Champions League

Champ líg er að byrja aftur, sem er snilld. Annars fékk ég sjokk í Eðlisfræði í dag, vorum nefninlega í prófi í gær og ég hélt nú að mér hefði gengið ágætlega. Svo var meistari Bjarni að dreifa úrlausnunum í dag og viti menn. Haldiði barasta ekki að undirritaður hafi fengið 6,2. Ég var ekki sáttur, fyrst fúll út í sjálfan mig og síðan út í kennarann. Og þegar ég var búinn að fara yfir þetta þá kom á daginn að “amma ruglast”. Kennarinn hafði þá gleymt að taka eitt dæmi með í reikninginn og ég hækkaði um einn heilann. 7,2 var lokaniðurstaðan og ég er samt frekar ósáttur við þetta, á að geta gert betur og mun gera það næst.

Soffinn minn er mættur í höfuðborgina og hyggur á ferð til London á morgun, reikna ég með að skutla elskunni á völlinn eftir hádegið á morgun. Góða ferð segi ég nú bara.

Ég verð nú að segja að Hlíðkvistinn er nú að taka þennan nærbuxnafyrirsætuferil full alvarlega, en lesa má fréttina um Hlíðkvistinn hér fyrir neðan í slúðrinu.

Minni svo alla á að kjósa fótboltalið. Bara ekki kjósa yfir ykkur ok

Þangað til næst…….

Skilti dagsins er: Biðskyldan á
Posted on February 23rd, 2004 at 7:03 pm by tommi

Skilti dagsins er: Biðskyldan á horni Grundargötu og Sæbóls í Grundarfirði

Neyðarkall. Mig bráðvantar venjulega vasatölvu ef einhver á sem hann er ekki að nota. Plíííííís ertu þá til í að hafa samband við mig og lána mér aight

Þangað til næst……

Þáttur dagsins er: 24 Það
Posted on February 23rd, 2004 at 5:11 pm by tommi

Þáttur dagsins er: 24

Það var eitthvað lítið um svefn hjá mér í nótt því ég steingleymdi mér í gærkvöldi, var að glápa á 24 aðra seríu og þetta varð alltaf meira og meira spennandi þannig að maður hugsaði “tjah, einn þátt í viðbót” og svo var klukkan allt í einu orðin tvö. En ég bæti þetta bara upp í nótt, fer bara snemma í háttinn.

Annars henti ég inn myndum frá helginni, aðalega föstudeginum inn á myndasíðuna. Rólegheitar helgi eins og alltaf, var bara að vinna og fór aðeins út á föstudaginn.

Svo vil ég minna fólk á að taka þátt í nýrri könnun, með hvaða liði þið haldið. Bannað að kjósa 50 sinnum á dag, eitt atkvæði er nóg bara svona til að sjá hvernig landið liggur í þessum málum aight.

Þangað til næst……

Nörd dagsins er: Bill Geits
Posted on February 23rd, 2004 at 5:06 pm by tommi

Nörd dagsins er: Bill Geits

Pirr pirr pirr, kem með pistil á eftir

Þangað til næst……

Lið dagsins er: Því miður
Posted on February 21st, 2004 at 3:42 pm by tommi

Lið dagsins er: Því miður Arsenal

Jójójó, wazzzzzuuuup mæ niggas, enska deildin búin, til hamingju þið Arse menn þarna úti, þá er ég sérstaklega að beina spjótum mínum að honum Ívari Karli sem er þessa stundina sveittur á nærbuxunum að smyrja sig með mæjónesi og dansa brjálaðan stríðsdans.

já Arsenal lagði Chelsea að velli 2-1 á brúnni á meðan mínir lúseralegur Júnæted menn náðu aðeins 1-1 jafntefli gegn hinu gríðarsterka botnliði Líds júnæted (vottar fyrir smá kaldhæðni)

Arsenal sem eru með 7 stiga forustu í deildinni og hafa ekki tapað einum einasta leik og virðast ekkert vera líklegir til að breyta því á meðan Júnæted eru eins og villuráfandi hænsn í vörninni án Ríós Ferdinands sem liggur þessa stundina með tærnar upp í loft á sólarströnd með 2 latínó gellur á kantinum á spáni.

ANDSKOTINN en nóg af því

Tomminn vill koma á framfæri baráttukveðjum til hans Dabba Wium stórfrænda míns og Siggu konunar hans sem voru að fjölga í fjölskyldunni nú í gær. Eftir gríðarlanga meðgöngu (c.a. 10+ mánuðir) fæddist þeim hjónakornum fallegur drengur sem vó 16 merkur og var 54 cm. Nú er Ísak Máni loksins kominn með lítinn bróður til að tuska aðeins til hehehe. Allavega til Hamingju Dabbi, Sigga og Ísak Máni.

Þangað til næst……..

Ofurhetja dagsins er: Captain America
Posted on February 19th, 2004 at 10:58 am by tommi

Ofurhetja dagsins er: Captain America

Jæja, ég hef ákveðið að koma með smá krassandi slúður:

Heyrst hefur…..

Sleggjan hafi drukkið yfir sig af rauðvíni og stigið villtan sambadans með herbergisfélaga sínum sem er af Indversku bergi brotinn.

að Dabbi Hlíðkvist aka Dabbi gulltippi sé farinn til Malasíu að reyna fyrir sér sem nærbuxna fyrirsæta.

að Steini Jobba hafi ákveðið að selja sjoppuna sína og opna súlustað á Reyðarfirði sem sérhæfir sig í innfluttum strippurum frá A-Evrópu.

að Gæi nokkur Hadda hafi reynt og reynt og reynt að komast inní eskimo models til að reyna fyrir sér sem karl fyrirsæta án árangurs.

Sössi bumba hafi sótt um vinnu á Burger King en verið hafnað.

Haraldur bumba sé nú fastagestur á Rabbabarnum á Patreksfirði.

að Ninni Dittu hafi ekið undir hross á vesturlandsveginum. Það þarf ekki að taka það fram að hann var á Micrunni sinni. Hvorki Ninni né Sörli frá Hofi meiddust í þessu óhappi

að Laugi Jónasar hafi yfirgefið Hólminn fyrir fullt og allt og gerst Grundfirskur ríkisborgari vegna skattafríðinda í Grundarfirði.

Soffi hafi sést óvenju oft á Bar 11 með 4 fyrirsætur og 1 páfagauk í fylgdarliði sínu. Ruglukollurinn lýsir yfir miklum áhyggjum af þessu.

Ísdrottningin sé ekki kölluð ísdrottningin að ástæðulausu.

að Rúna Jobba sé farin að stunda öldurhús borgarinnar af miklum krafti.

að þessi einstaklingur hafi hlotið verðlaunin “BEST KLÆDDI NÖRDINN” á Star Trek ráðstefnunni í Hveragerði um helgina.

að hinn tröllvaxni Heisi hafi gert bremsufar í brækurnar þegar hann reyndi að lyfta 220 kg í bekkpressu. Aðspurðu sagði hann að þetta væri ekkert merkilegt og kæmi oft og iðulega fyrir.

að Maggi Jobba hafi verið sektaður af Grundarfjarðarbæ fyrir hávaðamengun og gert að setja hljóðkút á Justyinn eða að kaupa nýjann bíl.

að sá sem hafi keyrt á bíl ruglukollsinns um síðustu jól hafi fundist í höfninni á Neskaupsstað. Ruglukollurinn ber af sér allan grun þrátt fyrir fyrri hótanir.

Lognið hafi gert þau mistök að elda Asíska Kjötsúpu einn túrinn og fyrir vikið verið kjöldreginn. Ennþá er verið að leita að hundi skipstjórans.

Og að lokum hefur heyrst að Bjössi nokkur Kolla verði gerður að heiðursforseta í Sjallanum á Akureyri.

Allt efni þetta er birt án ábyrgðar um sannleiksgildi og þeim sem ætla í mál við Ruglukollinn er bent á að hafa samband við Þórarinn Sigurðsson hæstaréttarlögmann sem þessa dagana hefur í nógu að snúast vegna málsókna á hendur Ruglukollinum.

Þangað til næst……..

Lag dagsins er: Disarm Disarm
Posted on February 18th, 2004 at 8:44 pm by tommi

Lag dagsins er: Disarm

Disarm you with a smile
And cut you like you want me to
Cut that little child
Inside of me and such a part of you
Ooh, the years burn

I used to be a little boy
So old in my shoes
And what I choose is my choice
What’s a boy supposed to do?
The killer in me is the killer in you
My love
I send this smile over to you

Disarm you with a smile
And leave you like they left me here
To wither in denial
The bitterness of one who’s left alone
Ooh, the years burn
Ooh, the years burn, burn, burn

I used to be a little boy
So old in my shoes
And what I choose is my voice
What’s a boy supposed to do?
The killer in me is the killer in you
My love
I send this smile over to you

The killer in me is the killer in you
Send this smile over to you
The killer in me is the killer in you
Send this smile over to you
The killer in me is the killer in you
Send this smile over to you

Þangað til næst……

Lag dagsins er: She’s So
Posted on February 18th, 2004 at 4:22 pm by tommi

Lag dagsins er: She’s So High með Kurt hobbita Nielsen

Mætti í skólann í dag, frekar slappur samt, en það reddaðist. Þegar ég var að keyra í skólann í morgun, rétt rúmlega átta, þá mæti ég bíl á planinu hjá Iðnskólanum sem varð svo kveikjan að þessum pistli. Hvað er húmor???

Bíll þessi var ankanlegur í útliti og ég hugsa að flestir sem sjá þennan ágæta bíl brosi nú út í annað þegar þeir bera hann augum. Er það húmor? Mín skoðun er já. Það er húmor að kaupa sér Trabant. Það er húmor að sprauta Trabant glans fjólubláan. Það er húmor að setja dökkar filmur ala FM hnakkar í Trabant. Það er húmor að setja ljóskastara (sem hvaða FM hnakki sem er myndi verða stoltur af á Impresunni sinni) á Trabant og það er húmor að setja frekar stóra stafi efst í framrúðuna sem stafa orðin “SLOW RIDER” á Trabant. Ég bölvaði sjálfum mér fyrir að vera ekki með myndavélina en ég stefni að því að ná gripnum á filmu í vikunni svo þið sjáið hvað ég er að tala um.

Húmor getur að sjálfsögðu birst í mörgum myndum og mun ég nú kafa aðeins dýpra í þetta fyrirbrigði.

Einn ákveðinn bloggari sem fékk link frá Batman um daginn vakti athygli mína. Húmoristi eða Hálfviti??? Oft er þunn lína þarna á milli en ég ætla hans vegna að álykta að hér sé um húmorista að ræða.

Annað svipað dæmi: Þessi bloggari vakti einnig athygli mína. Húmoristi eða Hálfviti??? Mér finnst þetta mjög fyndið og reikna því með að þetta sé húmoristi.

Er þetta húmor??? —>

Það er ykkar að ákveða. Annars held ég að húmor sé nú bara mjög persónubundinn. Oft hef ég nú verið miskilinn því að það er mjög margt sem mér finnst fyndið sem öðrum finnst kannski ekki svo fyndið. Svona er nú heimurinn skrýtinn og þið fyrirgefið mér þó að ég haldi aðeins í Hofstaðahúmorinn hehehe.

Þangað til næst…….

« Previous Entries