Posted on March 31st, 2004 at 8:22 pm by tommi
Hvernig leggst nýja síðan í ykkur??????
Allir að svara í commentakerfið aight.
Þangað til næst…..
Hvernig leggst nýja síðan í ykkur??????
Allir að svara í commentakerfið aight.
Þangað til næst…..
Eins og þið glöggu aðdáendur el ruglukollsins hafið kannski tekið eftir þá hef ég ákveðið að hætta með þennan andskotans blogger smogger sem var alltaf hundleiðinlegur. Soffi ezka búinn að redda mér movable type bloggi sem er skrilljón sinnum öflugra. Nú þarf maður bara að venjast þessu og læra aðeins á þetta áður en maður getur byrjað á fullu. Engar áhyggjur samt því föstudagsslúðrið verður nú samt á sínum stað eins og endranær og hef ég verið duglegur að stela myndum út um allt til að koma með einn feitann fréttapakka þar sem ENGINN er óhultur múhahaha.
(Read the rest of this story.)
Jójójó mæ Soff men has fixd mí blogg mæ men só wíll sí háw ðiss sjitt wörks aaaaight
(Read the rest of this story.)
Lag dagsins er: The Bitter End með Placebo
Jæja jæja jæja gott fólk og velkomin inn á Ruglukollinn þennan fallega þriðjudag, við ætlum að byrja á því að fara yfir það sem gerst hefur markvert í lífi Tommans undanfarna 4 daga. And here goes:
…… hmmm, ekki var það nú mikið.
Þá verðum við bara að fara yfir það ómarkverða í staðinn, allir tilbúnir.
Föstudagur:
Tomminn klórar sér í hausnum yfir stærðfræðidæmum sem hann skilur ekki bofs í.
Eyðir kvöldinu í tölvunni að gera einhvern andskotann, man ekki alveg hvað en yfirgnæfandi líkur eru á að það hafi verið CM
Laugardagur:
Tomminn mætir í vinnu á frívakt vegna mikilla anna í gulumúsarbúðinni því Elko opnaði búð við hliðiná.
Kvöldið fer í ekki neitt nema þá kannski Tiger Woods og CM
Sunnudagur:
Tomminn fer í vinnu kl 13:00 og stimplar sig út aftur kl 14:45 til að fara að horfa á Man Jú gera 1-1 jafntefli við tilvonandi meistara Asnenal.
Fer á fótboltaæfingu um kvöldið þar sem hann tapar ásamt Ívari Karli. Fúlt fúlt fúlt.
Mánudagur:
Skóli
Týnt debetkort
Læra
Fótboltaæfing
CM
Sofa
Þriðjudagur:
Skóli
Enginn peningur
Ekkert debetkort
Hláturskast í dönskutíma.
Ég hugsa að ég verði að mæta með 4 lítra kaffibrúsa handa honum Gulla mínum sem er búinn að vera svo duglegur að halda manni uppi á kaffi á þessum síðustu og verstu. Sækja um nýtt debetkort takk. Taka út pening líka, já takk.
Landsleikjavika, rokk og ról, vagg og velta og svo keppa í fússboll á morges.
Svo er hún Elsa Fanney grundaragella byrjuð að blogga og að sjálfsögðu fær hún link hjá mér.
Þeir sem hafa séð debetkortið mitt á röltinu vinsamlegast látið lögregluna í Kúbbavogihihihihihi vita eða komið því til skila til mín aight.
Þangað til næst……..
Lag dagsins er: Bored með Deftones
Jæja jæja jæja þá er kominn langþráður þráður… ha? nei ég meina langþráður föstudagur og allt í gúddí á þessum bæ, nema kannski að Big Goj karlanginn er ennþá veikur með rassamælinn standandi langt út….. hehehe.
Snæfell sópaði Njarðvík 3-0 og eru komnir í úrslitarimmuna. Drengirnir á nemanum eiga hrós skilið.
En nú er það föstudagsslúðrið aight.
Heyrst hefur……
Fyrsta veggspjaldið
að Ellý hafi komist á samning á Kanarí við að auglýsa ákveðið vörumerki.
Helga með einn hattinn
að Helga Hjálmrós hafi lagt allt blogg á hilluna til að einbeyta sér að ferlinum í hatta mátun fyrir geðveika.
Þetta er ekki óalgeng sjón í Firðinum
að Grundfirskar konur séu farnar að nota hárlit í miklu óhófi og að allur hárlitur á Snæfellsnesi sé nú uppurinn.
Steinar í sveiflu
að Steinar Áslaugs aka Daddi diskó sé að gera góða hluti á útvarpsstöðinni diskóið lifir fm 91.8.
Logni var léttur á því þegar hann tók sporið fyrir ljósmyndara ruglukollsins
að Lognið ætli að demba sér í dansskóla Heiðars Austmann til að heilla báðar dömurnar á krákunni.
Bjössi tók hraustlega á steikinni
að Bjössi nokkur Kolla hafi sigrað með yfirburðum í kappáti sem háð var á Fiðlaranum á Akureyri. Bjössi kláraði 12 kg nautasteik á 47 sekúndum og geri aðrir betur.
Gjafmilt fólk
að Guðmundur Pálsson og spúsan hans hún Hólmfríður hafi nú um daginn ákveðið að gefa 74 kr til styrktar blindum bændum.
Einbeytningin skín úr augunum
að Signý og Karólína hafi sett nýtt íslandsmet í að halda niðri í sér andanum, heilar 8 sekúndur.
Maggi á leið í ræktina
að nýr kraftajötunn sé fæddur og nú megi Hjalti Úrsus og Dúddi Ferguson vara sig.
Árangurinn lætur ekki á sér standa
að Big Goj sé að gera akkúrat öfugt við Mækel Djakkson og sé á góðri leið með að breyta sér í negra. Aðspurður sagðist Gaui nú vera búinn að fara í 3 aðgerðir, eina kynfærastækkun, og svo 2 húðdekkingar aðgerðir.
Laugi ætlar að vaxa hina löppina á þriðjudaginn
að Laugi Di Livio hafi farið í vax á lappirnar og hafi árangurinn komið honum þægilega á óvart.
Gerfið þótti bera af
að Soffi hafi dulbúið sig sem pólskann fiskvinnslumann á grímuballi á Hrafnistu og fengið 1 verðlaun fyrir búningahönnun.
Vönduð vinnubrögð eru aðalsmerki falsarana
að málverkafölsun sé vaxandi vandamál í Hafnarfirði.
Tomminn var hæst ánægður með nýja gripinn
að Tomminn hafi fjárfest í nýjum gsm síma með innbyggðum radarvara og alles.
Á meðan allt lék í lyndi
að Tommi og Dabbi Hlíð hafi slitið sambúð sinni vegna ágreinings um brúnkukremsnotkun Dabba.
Dýri í einni pásunni
að Svavar Áslaugs aka Dýri sé mikill baráttumaður fyrir 30 mín pásum á 10 mín fresti um borð í Hringnum.
Lognið í framleiðslunni
að Lognið hafi startað framleiðslu á gervipíkum úr fiskafurðum. Aðspurður sagðist hann hafa nýtt sér þetta í mörg ár og líkað vel og að það væri kominn tími til að landinn prófaði þetta líka.
Marbendillinn vildi ólmur út aftur
að Grundfirðingur SH hafi fengið marbendil í netin um daginn og að kokkurinn hafi verið snöggur að matreiða kvikyndið.
Bóndinn er gefinn fyrir sopann
að Bóndinn sé farinn að vekja athygli víðsvegar fyrir óvenjulegar drykkjuaðferðir.
Ninni að störfum
að Ninni Dittu hafi stofnað símaþjónustu sem sérhæfir sig í símtölum fyrir graða bændur yfir sextugt og aðspurður sagðist Ninni vart anna eftirspurn.
Það var ansi heitt í kolunum
að Doddsterinn og Dabbi séu meira en bara góðir vinir.
Rebba er búin að tapa öllu
að Rebekka geirvarta sé farin að stunda ískyggilega mikið fjárhættuspil og sé á kúbunni núna.
Prumpukeppnin var erfið
að Karólína hafi borið sigur úr býtum í árlegri afturendakeppni sem haldin var í Hveragerði um liðna helgi. Karólína vann 9 greinar af 12 og var með hæðsta stigafjölda af 15 keppendum en meðal keppenda voru Hjalti Prúmpús, Rassi prump og sigurvegari síðasta árs hann Bjössi Kolla.
Strípalingarnir iðkuðu fitlið af mikilli natni
að ónefndir Grundfirskir strípalingar höfðu náðst við ósæmilega hegðun í pulsupartý síðasta laugardag.
Þangað til næst……..
Sjúki maður dagsins er: Gaui minn sem ennþá er fárveikur
Ég keppti æfingaleik í gær með FC Fist og lyktaði leiknun núna með jafntefli 3-3. Skemmtilegur leikur og jafn þó svo að við hefðum átt að klára hann sjálfir. Vorum 2-0 yfir í hálfleik en svo var eins og að allir væru bara búnir á því, undirritaður var alveg hættur að geta hlaupið í síðari hálfleik og hitt liðið gekk á lagið og setti 3 mörk á okkur, helvítis djöfull. Svo náðum við að pota inn einu eftir að hafa girt okkur í brók. Maður er allur að koma til og ég fann það sjálfur að þolið er að aukast smátt og smátt. Þetta verður orðið fínt þegar maður getur spilað heilan leik án þess að springa aight.
Verð að fjárfesta í hönskum takk, þetta helvítis gervigras er ekki að gera það fyrir mig, þriðja leikinn í röð er maður með sand og salt og skít inní öllum rispum og svöðusárum, ekki gott, sérstaklega ef maður leggur hendurnar fyrir sig í falli eins og gerist oftast. Er núna með skemmtileg sár á vinstrihendinni, vinstra hnénu og fyrir ofan vinstra augað hrmpf. Ekki það að ég sé að gera lítið úr karlmennsku minni eða neitt þannig en þá er nú samt helvíti vont að fara í sturtu með svona skrámur. En að sjálfsögðu lét maður sig hafa það.
Soffa minn vantar Pixies miða og held ég að ég geti látið hann hafa eitt stk á réttu verði er það ekki.
Þangað til næst…….
Sjúklingur dagsins er: Aumingja vesalings Gaui minn sem er fárveikur
Jæks for de ligeglad mænd som fyr sig i kroppen, Sá sem getur þýtt þetta er beðinn að hafa samband því ekki get ég það hehehe.
CM 03/04 er ávanabindandi og hyggst ég fara í mál við Eidos fyrirtækið fyrir að gera mér þetta. Skóli skóli skóli skóli skóli skóli og aftur skóli. Taka mig á takk,
Æfingaleikur í kvöld, enginn Dabbi í markinu þökk sé Sigga. Vesalingurinn alveg að drepast.
Keypti 3 miða á Pixies í morgun, 2 þeirra eru up for grabs, any bidders? Reikna nú samt með að koma þeim út til vina og kunningja á kostnaðarverði þannig að ekki er maður að þessu til að græða hmm ha.
![]()
Ninni bróðir var að kaupa sér nýjan gamlan bíl. Mitsubishi Galant árg ‘96. Fallegur bíll og óska ég hér með honum stóra litla bróður mínum til hamingju með þessi fínu kaup.
Ninni salta sjónum á
svitnar alla daga
bíllinn nýi honum hjá
hann þarf ekki að draga
Tommi keyrir kerru þá
sem keyptann fyrir ári
gamall göndull keyrðann á
svo guminn tapar hári
Þangað til næst…….
Ofurhetja dagsins er: Kafteinn Ofurbrók
Heimska fólk sem kann ekki að keyra. Hrakfallabálkurinn ég var að keyra heim úr vinnunni í gær í gúddí fíling, var að keyra á aðreininni sem liggur inn á Nýbýlaveginn og kem þar að biðskildu, hægi á mér eins og löghlýðnum borgara sæmir og stoppa svo þar sem að ég sé að það er bíll að koma, c.a. 4 sek síðar….. BÚNK, er bara ekki keyrt aftan á mann. Ég í sakleysi mínu stíg út úr bílnum og mæti þá eldri manni c.a. 55+ ára og sá er frekar óðamála á því. Hann vissi nú alveg upp á sig sökina karlgreyið og baðst afsökunar á þessu öllu saman og var ég hinn rólegasti á meðan hann talaði á 250 km/h hraða og reyndi að útskýra þetta glappaskot sitt. Fyllt var út tjónaskýrsla og svo héldum við sitthvora leiðina. Ég þarf nú að fara að brasa í þessu, fara með bílinn í tjónaskoðun og svo á verkstæði. Hérna eru svo nokkrar myndir af beyglunni:
![]()
Þangað til næst…….
Snepill dagsins er: Hvað er snepill eiginlega???
Dabbi Hlíðkvist FMhnakka kóngurinn sjálfur er víst byrjaður að blogga og að sjálfsögðu fær þessi elska
link hjá mér.

You are Agent Smith, from “The Matrix.”
No one would ever want to run into you in a
dark alley. Cold as steel, tough as a rock,
things are your way or the highway.
What Matrix Persona Are You?
brought to you by Quizilla
Og þar hafiði það, ekki vera fyrir mér… ye be warned
Jónmundur dagsins er: Jónmundur
Jæja, kem bara með fokking slúðrið fyrir óþreyjufulla aðdáendur ruglukollsins þarna úti….. þið þarna þrír vitið hverjir þið eruð aight.
Heyrst hefur……..
Big Goj tók gríðarlega á í sigurgrettunni.
að Big Goj hafi tekið þátt í grettukeppni rafvirkja og sigrað með yfirburðum.
McGunnerinn einbeyttur við æfingar
að Haffi McGunner þriggja stiga skytta með meiru sé byrjaður að nota byltingarkennda tækni við æfingar á þriggja stiga skotum í körfubolta. Notast McGunnerinn við PS2 tölvu og stýripinna frá Sóný til að fínpússa nákvæmnina í skotunum og hefur þetta reynst gríðarvel að sögn Haffa.
Reynir byrjaði ungur að fara í gönguferðir.
að Reynir Pétur göngugarpur hafi snemma byrjað að fara í gönguferðir en nýjar myndir sem fundust við uppgröft í Sólheimum þykja sanna það.
Benni að bryðja brjóstsykur
að Uncle Benz hafi hannað nýjan megrunarkúr fyrir offitusjúklinga með Alzheimer sem byggist upp á að nota kóngabrjóstsykur í alla matargerð og sérstaklega ofan á pizzur.
Skari gefur skít í Rás 1
að hinn ungi Iðnskólanemi Óskar Ómars hafi gerst andvígur útvarpsstöðinni Rás 1 þar sem að þeir neituðu sífellt að spila óskalagið hans. Aðspurður sagðist Óskar vera búinn að eyða 38.023 kr í símakostnað við að hringja í Rás 1 og biðja um hið margfræga lag “allt á floti allstaðar” með Skapta Ólafssyni en alltaf verið synjað.
Skúli og Skapti á góðri stund
að síamstvíburarnir Skúli og Skapti Barkarsynir hafi brugðið á það ráð að flengja hvorn annan í fermingarveislu frænku sinnar til að vekja athygli á átröskun.
Múri á Sólon
að Fréttaritari Grundargötu 6 beiti óvenjulegum aðferðum við fréttaöflun, tæknin sem Múri beitir er reyndar gamalkunn og kallast á ensku “stalking”. Múri segir að þetta gefi mjög vel af sér og ófáar fréttirnar sem hann hafi fengið með þessu móti.
Þessar ljóskur sáust á Felix
að ljóskur sjáist æ oftar á sveimi og er talað um að faraldur gæti verið í uppsiglingu.
Lögreglan stendur aðgerðarlaus og horfir á ljóskur
að Löggan ætli ekki að aðhafast neitt við þessum ljóskufaraldri.
El Ninnio fær að éta pizzur endalaust skv samningnum
að Ninnmundur hafi gert risa samning við Pepsi og Dómínós Pizzur um að vera andlit fyrirtækjanna á komandi sumri. Ninnsterinn mun bera uppi merki þessara ágætu fyrirtækja jafnt innanlands sem utan.
Tomminn montinn með Börbörís trefilinn
að Tommi litli hafi aldeilis dottið í lukkupottinn síðasta sunnudag þegar hann fékk gefins forláta Börbörís trefil frá einum þekktasta ofurhnakka samtímans, honum Dabba Hlíð. Aðspurður sagðist Hlíðkvistinn að hann væri búinn að fjárfesta í nýjum því þessi væri ekki kúl lengur eins og hann orðaði það svo nett.
Eva M. og Eyrún voru sáttar
að Sleggjan og Sex in da city hafi deilt með sér fyrsta sætinu í fegurðarsamkeppni áhugabloggara sem haldin var á Dalvík um helgina.
Sleggjan hefur yfir mikilli tækni að ráða á þessu sviði eins og sést glögglega hér
að Sleggjan hafi tekið að sér að kenna fólki hvernig eigi að bera sig að við munnmök hesta.
Þórhldurin og Evan á meðan allt lék í lyndi
að Þórhildur Ó. og Eve online hafi slitið 15 ára gömlum vinskap með látum síðasta miðvikudag. Ástæðuna kváðu þær stöllur vera viðskiptalegan ágreining um stóðhestinn Grunda frá Hofi sem var í sameiginlegu eignarhaldsfélagi þeirra beggja. Þær ætla hvorugar að reyna aftur eins og sagði dægurlaginu fræga.
Bjössi í sveiflu
að Bjössi nokkur Kolla sé byrjaðu að kenna Júgóslavneskan rúmbadans með góðum árangri.
Soffi myndar hnetusmjör
að Soffi hafi fundið nýtt áhugamál í matvælaljósmyndun sem ku vera mikið stunduð í Malasíu.
Tveir fullir í vinnunni
að umferðaljósakallar hafi ítrekað verið teknir við að vera fullir í vinnunni. Þetta er að verða æ stærra og stærra vandamá segir yfirlögreglustjórinn, þá sérstaklega á gatnamótum Bústaðavegs og Miklubrautar þar sem þeir félagar sem sjá um þau ljós séu sérstaklega mikið fyrir sopann.
Skipstjórinn hætti sér aðeins of langt
að ónefndur skipstjóri hafi farið aðeins of nálægt landi í síðustu viku. Aðspurður sagðist hann hafa verið að reyna að ná betri sjónvarpsskilyrðum því áhöfnin var í fíling að horfa á nýjasta tækni og vísindi með Sigga Richter í fararbroddi.
Þangað til næst………