Rólegur dagur
Posted on June 29th, 2004 at 1:22 pm by tommi
Well well well, allir á shell, ég og Uncle Dave hyggjum á ferð á heimildarmyndina um Metallica í kvöld, some kind of monster. Held að það sé væs múv þar sem að kapparnir eru víst á leiðinni á klakann. Sjiiiiittt hvað það er stutt í þetta. Ég man þegar maður var í 9 og 10 bekk hvað maður dýrkaði þessa kalla marr uuuussss. gút tæms marr.
Svo er maður líka að rembast við að fjárfesta ógáfulega, það gengur svona upp og ofan. kemur í ljós í lok vikunnar eða í byrjun þeirra næstu. Vonandi.
En eníveis þá verður Tomminn hryggur af því að sjá hvað fólk er latt við að commenta á mann hérna. Sjálfur vafra ég um netið og skil sjaldan eftir mig færri en 32 comment á hverri síðu hrmpf ehaggi. En endilega takið ykkur nú á í commentunum hérna, óþarfi að vera feiminn við Tomma sinn. Ég bít ekki enda grænmetisæta á háu caliberi.
Að lokum eru svo hér 10 aðferðir við að drepa tímann þegar lítið er að gera í vinnunni…
01. þræða internetið í leit að hinum fullkomna tetris leik
02. skoða alla bíómynda trailerana á apple.com
03. snyrta táneglurnar undir deskinu hjá þér
04. gera símaat hjá opinberum ríkisstofnunum
05. telja kaffiblettina á borðinu hjá samstarfsmönnunum
06. skrifa harðort e-mail til grænfriðunga um illa meðferð á mörgæsum
07. telja allar heimasíður sem enda á .com
08. láta sig dreyma um betri tíð með blóm í haga
09. adda inn á msn hjá sér random hotmail.com netföngum og sjá hvað gerist
10. opna batman.is og mbl.is á 2 mínútna fresti og sjá hversu oft þeir uppfæra
Vonandi að þetta geti hjálpað fólki eitthvað við að drepa tímann..
Þangað til næst……
Sjiiiiitttt hvað það er lítið
Posted on June 29th, 2004 at 11:28 am by tommi
Sjiiiiitttt hvað það er lítið að gera í vinnunni.
Þangað til næst……
In a little while
Posted on June 28th, 2004 at 3:33 am by tommi
Hmmm, kominn aftur í borg óttans, leiðinlegt en samt ekki. Fór í fótbolta með Rúnu kl 23:00 þegar við komum og vorum að leika okkur á malbiksvelli sem er fyrir ofan húsið mitt. Enduðum á vítaspyrnukeppni þar sem að síðasta spyrnan sem Rúna tók fór 6 metra yfir markið ala Becks og endaði uppá þaki hjá fólkinu við hliðiná. Líklega ekki það vinsælasta að hrökkva upp af værum svefni við þungan dink þegar komið er fram yfir miðnætti hmmm. Snillingur hún Rúna.
Svo heyrði ég ótal sögur af öðrum snilling frá Vopnafirði sem lætur mann veltast um af hlátri. Spurning um að láta eitthvað af þeim flakka hérna á blogginu. Veit ekki alveg hvort ég kann við það en það verður allavena ekki alveg strax hmm.
Svo var ég að lesa bloggið hennar Völlu sem er linkað á hérna til hliðar þegar allt í einu að litla hjartað mitt tekur kipp. Þá lýsir Valla því bara yfir að Grundó sé barasta fallegasti staðurinn á Íslandi sem hún hefur komið til, sniff, takk Valla. Maður hálf klökknaði bara af því að lesa þetta.
Þangað til næst……
Búbúbú
Posted on June 26th, 2004 at 6:40 pm by tommi
Farinn vestur, slúður kemur seinna, kanski bara næst aight
Þangað til næst…..
Það hlaut að vera….
Posted on June 25th, 2004 at 11:12 am by tommi
Þá hefur það komið í ljós. Pavel Nedved, drifmaskína í tékkneska landsliðinu er hluti af x-men grúppunni. Aðspurður sagðist Pavel hafa stökkbreyst þegar hann bauð sig fram í tilraunir með beinmergsog aðeins sex ára að aldri. Stökkbreytingin hefur heldur betur reynst Pavel vel í atvinnu hans sem tuðrusparkari en hann er einn af fremstu knattspyrnumönnum í heimi. Þegar rökkva tekur þá fer Pavel og berst við hlið Wolverine við ill öfl í heiminum.
Tommi, alltaf sjötti með heitustu fréttirnar.
Lesa má meira um þetta —HÉR— þar sem að þessi heimild fékkst hehehe.
Þangað til næst……
Sjæse blæse mæse
Posted on June 24th, 2004 at 11:19 pm by tommi
Portúgal slóge ze Engrish út úr keppninni í vító. Gamlar fréttir þar sem að Ze Engrish hafa ekki unnið vítakeppni síðan sautjánhundruð og súrkál. Meistari Becks gaf tóninn með spyrnu rétt yfir slána (c.a 8 metra yfir) og reyndi svo að kenna vítapunktinum um klúðrið sitt, gút for him. Hvernig ætli fyrirsagnirnar verði á morgun? Annars var markvörðurinn hjá Portúgal helvíti svalur. Varði síðustu spyrnuna berhentur og tók svo úrslita spyrnuna fyrir Portúgal strax á eftir og hamraði leðrið í netið. Helvíti nett þar sem að hann tók öruggasta vítið. Englendingarnir voru áður búnir að hamast við að skjóta í mitt markið hjá honum kall greyinu en bling blingarnir í Por fóru með sigurð af hólmi eins og áður sagði og sigurður biður bara að heilsa.
Þangað til næst……
Hehehehe
Posted on June 24th, 2004 at 12:03 pm by tommi
Skora á fólk að prófa —ÞETTA— hehehehe. Tók þetta af batman.is, mjög fyndið hvað Ástþór Magnússon kemur til með að verða.
En þetta var mín niðurstaða: Tómas Freyr Kristjánsson, Your ideal job is a Playing for Aberdeen.
Endilega tékkið á ykkar og segið mér svo frá því í commentakerfið aight.
Mæli sérstaklega með að Höddi, Soffi, Ninni, Steini Jobba, Viggi, Logni, Sleggjan og Rut tékki á sínu hehehe, þá er ég að tala um fullt nafn.
Þangað til næst…..
Uppfærð könnun
Posted on June 24th, 2004 at 12:17 am by tommi
Jæja, könnunin hefur verið uppfærð þar sem að liðunum hefur fækkað um helming á EM, ekki vera feimin við að kjósa aight og ekki vera feimin við að óska mér til hamingju með þrennuna mína aight.
Þangað til næst……
Þrenna
Posted on June 23rd, 2004 at 4:47 pm by tommi
Jæja gott fólk. Loksins kom Soffi minn í land og gat lagað bloggið, kiss kiss og knúz. Margt hefur drifið á daga Tommans síðan um liðna helgi. Helgin var róleg og Tomminn mætti svo gallvaskur í nýju vinnuna á mánudaginn. Búinn að horfa mikið á EM þar sem að Ítala lúserarnir þurftu að pakka ofan í töskur snemma. Og spurning um að Hollendingarnir þurfi ekki að gera slíkt hið sama í kvöld. En nóg um það. Tomminn er búinn að vera duglegur að moka út úr lengjunni á EM leikjunum en er reyndar búinn að vera duglegur að moka í lengjuna líka þannig að líklegast er maður á sléttu.
Keppti leik með FC Fist á þriðjudagskvöldið þar sem að við spiluðum við Bjartmar Daða og félaga í Marshall Utd. Leikurinn var fjörugur og ekki vantaði mörkin í þennan leik. Marshall komst í 1-0 eftir 16 mínútna leik óverðskuldað og bættu svo við öðru á 20 mín. Fistararnir voru sterkari aðilinn í leiknum og nú fórum við að pressa á þá. Ég byrjaði á bekknum en fór inn á í stöðunni 2-0. Fljótlega eftir það fékk ég stungu inn fyrir og náði að prumpa tuðrunni innfyrir og laga stöðuna aðeins 2-1, fyrsta markið mitt í Utandeildinni. Stuttu síðar fékk ég svo DAUÐAFÆRI sem að ég hefði átt að nýta en á einhvern óskiljanlegan hátt þá náði ég að skófla tuðrunni yfir af hálfs meters færi en ég vil segja mér það til varnar að ég var byrjaður að halla mér afturábak þegar boltinn hrökk til mín óvænt þannig að ég var ekki í bestu aðstöðunni til að skjóta, samt á maður nú að nýta svona færi. Staðan var 2-1 í hálfleik og seinni hálfleikur byrjaði með sama lið og byrjaði fyrri hálfleikinn, semsagt ég á bekknum. á 60 mín komust marshall í skyndisókn og komust í 3-1 mjög ósanngjarnt. Við sóttum án afláts og svo kom að því að maður fékk að fara inná aftur á 65 mín. Þegar ég var að skokka inná af bekknum þá kalla strákarnir á mig og segja að ég verði bara að setja 2 mörk í viðbót, ég brosi nú bara til þeirra og kinka kolli. En á 76 mín eða 4 mínútum fyrir leikslok þá er maður eitthvað að væflast inná teig og Baldur kemst upp kantinn og nær að gefa fyrir, það skipti bara engum togum nema að kallinn sjálfur skallaði bara í nærhornið 3-2. Smá von og 4 mínútur eftir. Svo á 79 mín þá er maður aftur að væflast inní teig og aftur kemur fyrirgjöf, man ekki alveg frá hverjum en það skipti bara engum togum nema að Tommi skallar bara aftur í netið og jafnar fokking leikinn 3-3 og bara 1 mínúta eftir. Allt trylltist af fögnuði enda áttum við þetta alveg skilið og seint skal ég vera tilinn til sterkra skallamanna. Svo taka Marshall menn miðju og einn afglapinn hjá þeim álpast inn í vítateig og stígur á skóreimarnar sínar og dettur á hausinn og annars ágætur dómari leiksins dæmdi vítaspyrnu sem að þeir skoruðu svo úr 4-3, mjög svekkjandi en svona er boltinn bara. Við tókum miðju og dómarinn flautaði leikinn af. Það má svo geta þess að hver leikur í utandeildinni er bara 2 x 40 mín. En eníveis þá setti kallinn bara þrennu og þar af 2 með skalla sem er nú ekki mín sterkasta hlið hehehe. Hvet fólk endilega að ýta —HÉR— og skrolla niður að 22 júní og sjá allt um leik Marshall og FC Fist, ég allavena fæ ekki leið á að skoða þetta hehehehehe.
Óskið mér til hamingju með þrennuna í commenta kerfið og ég skal lofa að skrifa næstum því aldrei aftur svona langan fótboltapistil aftur aight. Ég er bara svo rosalega sáttur við að hafa skorað þrennu, æ mín hú vúldnt bí aight.
Þangað til næst…….
Where everybody knows your naaaame
Posted on June 18th, 2004 at 11:41 pm by tommi
Whaddup fóks? Allt gott æ gess, eníveis…. Dabbi frændi bauð kallinum í mat í kvöld og kann maður honum bestu þakkir fyrir, Dabbi stóð sveittur út á svölum þegar manni bar að húsinu hans og þegar inn var komið var þessi líka þvílíka grill lykt, yngri sonurinn lá sprækur á gólfinu og fékk ég að leika aðeins við hann á meðan Dabbi fullkomnaði steikurnar hehehehe. Helvíti fínt, ég held svei mér þá bara að ég sé ennþá saddur og klukkan að slá í miðnætti, því miður gleymdi ég myndavélinni en ég þarf nú að smella nokkrum pólarojd myndum af litlu frændum mínum þeim Ísak Mána og Loga Snæ.
Ítalía Svíþjóð var fjörugur og ekki vantaði færin. Klaufarnir í ítalska liðinu áttu að vera löngu búnir að klára þennan leik enda óðu þeir í færum. En að sjálfsögðu þurfti Sláni Íbrahímóvitsj að jafna með einhverju ótrúlega fáránlega asnalegri hælspyrnu skeitin inn, hnuuusss og hneisa.
Annars gengur nýja vinnan alveg glimrandi vel og leggst þetta bara þvílíkt vel í mig, voðalega vel hugsað um mann þarna hjá EJS enda einstaklega frábært fyrirtæki ehaggi?
Er enn að leita mér að mótorhjóli á viðráðanlegu verði en það er bara andskotinn ekkert að finna í kringum 500 kallinn, en þegar maður kemur yfir 700 þús þá er nóg úrval. andskotinn, maður ræður bara ekki við svoleiðis pakka því miður 
Ef einhver sem þetta les veit um eitthvað sniðugt þá endilega hafa samband, senda mér meil eða eitthvað aight.
Þangað til næst……