Akureyri here I come
Posted on July 30th, 2004 at 11:09 am by tommi

Jæja, kallinn að fara norður ásamt spúsu, Ellen, Soffa celeb, Signýu, Vigga, Magga, og fleirum og fleirum. Ekki er nú veðrið beisið hérna í borg óttans en þetta hlýtur að fokking reddast er það ekki. Hérna er svo smá slúður í tilefni helgarinnar.

Heyrst hefur…..

að Rúna Jobba sé þjáð af tannsteinsskemmdum í efri góm


Rúna sem burstar tennurnar átta sinnum á dag skilur ekkert í þessu

að Gummi Palla og Logni Stormson hafi skiptst á skoðunum þegar þeir hittust fyrir algjöra tilviljun um daginn


Gummi vill innleiða sölu á vændiskonum frá Kazakstan en Logni er alfarið á móti því og lifir harður eftir slagorðinu “veljum íslenskt”

að Steini Jobba hafi á dögunum ákveðið að gerast eldgleypir en eins og sést á þessari mynd þá veit hann ekki alveg hvernig hann á að bera sig að


Steini er hér nýbúinn að hósta upp einni eldspýtunni

að Rauðu Djöflarnir séu víða


Þessi var frekar óhress á því þegar ljósmyndara bar að garði

að víða sé ást á barnum eins og segir í frægu dægurlagi


Þarna eru tvö lukkuleg

að Kotarinn sjálfur sé mikill djammari og þegar hann fær sér bjór þá dansi hann polka fram eftir öllu


Hér er Kotarinn í einni sveiflunni

að það hafi fokið illilega í Lognið þegar Palli Danski brókaði hann illilega


Logni var skiljanlega reiður þar sem að hann var með kúkabragð í munninum í 3 daga á eftir

að trúbadorarnir Tóti Löpp og Steini Sleggja séu að meika það feitt á Borðeyri


Hérna eru þeir að flytja slagarann sinn Óla prik

að Haddi skaga Pimp sé með nokkrar fýsur á sínum snærum og sé að selja þær tjíp


Án efa vinsælasti og ódýrasti pimpinn

að Maggi Jobba sé viðskiptavinur Hadda nr 1 en hann ku fá sér fýsu 4 sinnum á dag


Maggi er hér að versla sér eina fýsuna

að Haddi Pimp og Ninni Dittu séu í mikilli samkeppni um fýsurnar


Haddi og Ninni eru hér að rífast um Fríðu Lein

að mega íþróttagarpurinn Runólfur hafi á dögunum endað í þriðja sæti í grindarhlaupi á eftir Steina Jobba og Soffa Celeb á Steinþórsmótinu. Runólfur kom 2 klst á eftir Steina og Soffa sem voru komnir í bjórinn á meðan þeir biðu eftir Runólfi.


Þessi skemmtilega mynd náðist þegar Runólfur var að klöngrast yfir síðustu grindina

að hinn óborganlegi Gæi Hadda hafi á dögunum fjárfest í forláta jakka sem á að hafa verið í eigu Alex Förguson


Gæi sýnir hér stolltur nýja jakkann sem hann keypti í Kolaportinu

að Hafnarverðirnir í Grundarfirði séu í skringilegum skrúða í vinnunni


Haddi er red end prád

að Ninni Dittu hafi sóst eftir hlutverki í myndinni Clueless 2 en verið hafnað því hann hafi verið “of mikið” clueless


Ninni er hér að pósa fyrir leikstjórann

að búið sé að klóna menn


Þessi eintök heita Iggi og Aggi

að búið sé að kæra tvo grundfirðinga fyrir ósæmilega hegðun gagnvart búðargínu


Grundfirsku perrarnir náðust á filmu

að unglingafyllerí sé vaxandi vandamál


Þessi byrjar frekar snemma í því

að Soffi Celeb segir að frægðin sé fallvölt og að hann eigi ekki lengur vini


Þetta er ekki óalgeng sjón

að Viggi Runna sé viðskotaillur þegar hann fær sér í glas


Viggi var frekar pirraður þegar minnst er á yfirvigtina á honum

að Steini sé kominn á bullandi samning við ADIDAS


Steini three stripes er ánægður með dúið

að Ísdrottningin sé í harðri samkeppni við Ásdísi Rán


Ísdrottningin tekur zoolanderinn á þetta

að það þyki töff að drekka cosmopolitan


Þessar fýsur reyna að tolla í tískunni

að áfengi og reiðhjól fari ekki vel saman


Ouch

Við skulum láta þetta gott heita í dag. Góða skemmtun um verslunarmannahelgina og gangið hægt um gleðinnar dyr…

Þangað til næst…..

Soffi celeb
Posted on July 29th, 2004 at 3:01 pm by tommi

Hann Soffmundur guðfaðir bloggsins er loksins búinn að slá í gegn á heimsvísu á undan öllum hinum í stórsveitinni Kvaðratrót. Mynd af Soffa birtist í mogganum í dag 29 júlí þar sem kallinn er að versla jógúrt í 10 11. Soffi reynir nú að gera lítið úr þessu en hann er nú þegar hættur að svara símtölum frá mér og þegar ég hitti hann áðan þá virti hann mig ekki viðlits, svaraði ekki þegar ég kallaði á eftir honum og þegar ég hljóp á eftir honum voru tveir þeldökkir kraftajötnar sem tækluðu mig, rifbeinsbrutu mig og sögðu mér á slakri ensku að ég ætti að láta mig hverfa.
Svona er nú frægðin fallvölt, en nóg um það. Nýr besti vinur óskast þar sem að Soffi er farinn að hanga með Jöstin Timburleik og Kíanú Rívs. Áhugasamir eru beðnir um að fylla út aldur og fyrri störf í commentakerfið ef þú ert rétti maðurinn í að vera nýr bestivinurminn aight.

Þangað til næst……

Fokk fokk fokk
Posted on July 27th, 2004 at 11:07 pm by tommi

Ég er allt of fokking brjálaður til að geta bloggað eitthvað af viti núna. Var að spila fokking ömurlegan leik með fokking FC Fist og við fokking töpuðum fokking 5-0 fokking verðskuldað. Sjitt hvað við vorum fokking lélegir allir sem einn. Ég spilaði frammi og var inná allan fokking tímann skilurru. Fokk fokk fokk fokk fokk. Fékk 2 fokking færi sem ég fokking átti að nýta fokking gad dem fokking sjitt klaufaskapur. Var kominn einn í gegn í bæði fokking skiptin og fokking skaut fokking yfir í fyrra skiptið og fokking framhjá í fokking seinna skiptið. Fokking andskotans fokking klaufahelvítisskapur marr. Djöfulsins fokking aumingjafokkingskapur. FOOOOOOOOOOOKKKKKKKK

Og hvað eru mörg fokk í því???

Þangað til fokking næst……..

Er það Akureyri um helgina?
Posted on July 26th, 2004 at 7:08 pm by tommi

Jæja, þá eru myndirnar komnar inn fyrir þá sem hafa áhuga á því.

Þangað til næst…..

Er það Akureyri um helgina
Posted on July 26th, 2004 at 4:08 pm by tommi

Úúúúúúúújeeeeee

Sjiiittt hvað þetta verður svalt

Þangað til næst……

Er það Akureyri um helgina
Posted on July 26th, 2004 at 3:35 pm by tommi

Skv nýjustu skoðanakönnun Skrallúpp þá virðast flestir vera á leið norður um verslingahelgina.

31 eru búnir að svara könnununni og línurnar eru klárar á kanntinum, svona lítur þetta út:

5 sögðust ætla á þjóðhátíð og æla gulum maísbaunum

9 ætla að fylgja fordæmi Tommos og Viggos og fara á Akureyri

2 ætla að vera í Grundarfirði (enda nafli alheimsins)

0 ætla í Galtalæk vúhú

2 ætla að elta mig og Vigga. Gangi ykkur vel múhahaha

4 halda að Verslóhelgin sé bara fyrir fólk úr Versló

4 ætla að elta sólina

3 sögðu að Versló sökki feitann böll

Semsagt, línurnar eru skýrar aight, Akureyri hjír æ komm

Svo minni ég fólk á að kjósa í nýju könnununni

Þangað til næst……

Á góðri stund
Posted on July 25th, 2004 at 8:35 pm by tommi

Jó jó jó, Á góðri stund helgin er liðin og þvíkíka snilldin sem þetta var. Sko, kallinn lagði af stað með Viggmundi á föstudagskvöldið í grenjandi rigningu að það hálfa hefði verið mikið meira en nóg. Frekar kalt þegar við mættum á Kaffi 59 með hálfan Kolgrafarfjörðinn á okkur. En svo bara fljótlega eftir að við komum þá stytti bara upp og var orðið heiðskýrt um nóttina. glymrandi sólskin allann laugardaginn og þvílíkt snilldar veður. Svo seinnipartinn í dag sunnudag þá fór að hvessa aftur og skúrir. Semsagt brilliant veður á meðan hátíðin stóð sem hæðst hehehe. Algjör glymrandi snilld.

Kallinn tók 100+ myndir og koma þær inn vonandi fljótlega. Annars bara adjós amígós

Þangað til næst…..

Brrrrr
Posted on July 23rd, 2004 at 3:25 pm by tommi

Mér finnst rigningin góóóð, tralaalalala vooóóó… Eins og sagði í dægurlaginu hérna í denn. Rigning rigning og aftur rigning. Eitthvað var Soffi minn að reyna að blekkja sjálfan sig og halda því fram að ekkert væri að marka svona veðurspár og kallinn pissaði yfir þetta allt saman. En hefðinni samkvæmt var að sjálfsögðu rigning, but of course. Maður ætti nú svo sem að vera vanur þessu enda er hægt að telja það á fingrum annarar handar þá sjómannadaga og Grundaradaga þar sem hefur verið glymrandi gott veður. En eníveis þá verður þetta bara að hafa sinn gang og þetta reddast allt saman einhvernveginn. Ef það rætist úr þessu þá ét ég þetta glaður ofan í mig en mikið helvíti verður kalt að hjóla vestur á eftir brrrrr

Þangað til næst…..

Gó Grundó
Posted on July 23rd, 2004 at 10:52 am by tommi

Á góðri stund er að byrja í dag og því er mikil og góð hefð fyrir því að græja smá slúður í tilefni dagsins. Annars reikna ég nú ekki með því að það komi neitt hér inn á þessa síðu fyrr en á mánudaginn aight. Reyni að taka einhverjar myndir af hinu ýmsa fólki í vafasömum stellingum.

Heyrst hefur…..

að snillingarnir á Hótel Holti noti nýstárlegar aðferðir við að nálgast kúnnana.


Þessi tiltekni kokkur var hress á því þegar hann flippaði einu snitselinu við

að vertinn í Baulunni sé ansi hreint hress á því þegar kemur að því að afgreiða leðurklædda einstaklinga


Hérna er Kibbi nýbúinn að afgreiða samtök bdsm á íslandi

að hinn treggáfaði Tommi hafi sóst eftir hlutverki sem Tortímandinn sem á að setja upp í Loftkastalanum í haust.


Tomminn þótti ekki alveg nógu mikill vexti fyrir hlutverkið en næs træ ðó

að Rúna Jobba hafi að eigin sögn fengið frábært djobb hjá Volvo í Svíþjóð við að árekstraprófa bíla


Hér er Rúna á 120 km/h rétt að fara að skella á vegg í feiki stuði

að hinir óborganlegu Pétur Jóhann Sigfússon og Kalli Lú séu búnir að stofna fmhnakka gengi dauðans sem sérhæfir sig í að pissa sitjandi


Dúddarnir voru eitthvað fúlir við ljósmyndara þegar fyrsta pissið átti sér stað enda klukkan ekki nema rétt rúmlega 5 um morguninn

að boy-bandið kvartett Áka Leifs séu að meika það feitt í Færeyjum, eru þar í mikilli samkeppni við Brand Enni um söluhæstu plötuna.


Strákarnir hafa selt 43 eintök sem er Færeyskt met

að Pétur Jóhann Sigfússon hafi enn og aftur verið fúll á móti og með puttann á lofti þegar hann reynda að pissa sitjandi með vafasömum árangri


Pétur pissaði í buxurnar öðrum til mikillar skemmtunar eins og sést á meðfylgjandi mynd

að hinn merkilegi Big Goj hafi á dögunum fundið heiftarlega prumpulykt inni á klósettinu hjá sér


Big Goj sagðist ætla að finna sökudólginn í fjöru

að Logni Stormsson hafi fengið sér það all hressilega í glas um daginn að hann gleymdi hvar hann átti heima


Logni var nett slétt flétt blekaður á því

að aðal mótorhjólatöffarar Grundarfjarðar séu ekki svo miklir töffarar eftir allt saman.


Eins og sést glögglega hérna þá eru félagarnir frekar miklir lúðar

að Soffi svali hafi fundið upp nýtt áhugamál


Áhugamál Soffa felst í því að teygja úr sér á hinum ýmsu stöðum

að græðgin geti gert menn geðveika


Signý er hérna aðeins of gráðug kannski

að franska parið Gerard Pique og Monice Le Gelluereni hafi sótt Ísland heim á dögunum og líkað vel


Parið fór og sá Gullfoss og Geysi

að hinn þrotlausa Fanney Dóra hyggi á meira nám og nú sé komið að Stýrimannaskólanum


Fanney er hér að æfa sig fyrir haustið

að höfuðfötin sem fólk notar í Ólafsvík séu skv nýjustu tísku í Bangladesh


Hér er einn Ólsarinn eitilharður með flottustu húfuna á markaðnum

að forsprakki Rokklinganna hafi sést blindfullur á Kaffi Austurstræti um liðna helgi og það hafi ekki fallið í góðann jarðveg hjá Einari Bárðar sem heldur úti Rokklingunum


Eins og sést glögglega hérna þá var Rokklingurinn í mjög vafasömu ástandi

að Rósa Smára hafi gefið skít í allar myndatökur á almannafæri


Rósa er nú þekkt fyrir allt annað en að vera fúl við myndavélar

að kripplingarnir á Kaffi 59 séu engum líkir


Maggi og Begga eru oft á tíðum ansi furðuleg

að hinn óborganlegi Ninni Dittu hafi um daginn skóflað einu kílói af president í aðra nösina á sér og hlotið varanlegan skaða af


Eins og sést hérna er nefið á Ninnsternum orðið ansi stórt

Jæja fólk. Þetta er orðið ágætt í bili. Sjáumst bara öll hress og kát á Góðri Stund um helgina er það ekki, hvort sem það verður rigning eða ekki aight.

Þangað til næst……

Je beibí je
Posted on July 21st, 2004 at 3:03 pm by tommi

Veit ekki alveg hvað manni á að finnast um þessa bévítans veðurspá. Spáir bara einhverri andskotans rigningu um helgina. Helvítis djöfull. Er of mikið að biðja um gott veður á Góðri stund eða…. Stupid weather.

Eeen það er nú bara miðvikudagur í dag þannig að þetta gæti reddast, maður vonar það besta.

Hérna er svo mynd dagsins:

Þessi mynd er af honum Dabba frænda mínum sem er markvörður hjá FC Fist. Ástæðan fyrir því að ég valdi þessa mynd er sú að Dabbi “þykist” vera eitthvað meiddur í öxlinni og hefur hvorki mætt á æfingar né spilað leiki með hinu virðulega liði FC Fist. Svo fréttir maður af honum á Akranesi í grillveislu að belgja sig út á kótilettum og kartöflusalati á meðan maður er sjálfur sveittur á fótboltaæfingu. Skamm skamm. Spurning hvort Dabbi sé að reyna að fylla út í markið hmmm hehehe.

Nei nei þetta er nú svona meira í djóki.

Þangað til næst…..

« Previous Entries