Hrikalegt
Posted on October 30th, 2004 at 9:58 pm by tommi

Þó að maður sé nú ekki þekktur fyrir að halda með Lifrapolli né vorkenna þeim þegar illa fer þá getur maður nú ekki annað en vorkennt aumingja Djibril Cisse sem fótrotnaði illa í dag. Myndirnar tala sínu máli…


Ouch segi ég nú bara.

Þangað til næst……..

Góð gjöf?
Posted on October 30th, 2004 at 4:31 pm by tommi

Jæja, maður fékk góða afmælisgjöf frá Mansteftir Júnæted í ár. Fínt að vinna Asnenal og allt það en kommon. Drulla svo uppá bak á móti einhverju djöfulsins miðlungsliði eins og svo oft áður. Nú held ég að það hlakki í púllurum og nöllurum, sem voru nú tæpir að ná í stig á móti Sáþhampton. Djöfuls prump helvíti… Það sýður á Tommanum núna.



Jæja, ég ætla að halda áfram að vera handleggsbrotinn fokk sjitt.

Þangað til næst……..

Áhugavert
Posted on October 28th, 2004 at 11:29 am by tommi

Hérna kom nokkrar tillögur að pakka handa Tommanum.


Það er nauðsynlegt að eignast þennan grip. Nr 1 á listanum


Pittarinn er svalur í þessari. A must own gripur


Alladin er nú með þeim betri sem Disney hefur sent frá sér


Það væri nú gaman að eiga eina svona


Nú eða svona


Mig vantar svona


2004 árg af Honda CBR 1000 RR er flott hjól

Bara svona til að gefa ykkur smá gjafa hugmyndir hehehehe.

Þangað til næst……

2 nóv er að nálgast
Posted on October 27th, 2004 at 10:37 am by tommi

Já góðir hálsar. 2 nóvember nálgast óðfluga og það er sko merkilegur dagur skal ég ykkur segja.

Þann 2 nóvember….

árið 1470 fæddist Edward konungur V. Hann var síðar myrtur af Ríkharði III (1483)

árið 1570 var risa flóðbylgja í norðursjó sem eyddi varnargarði frá Hollandi að Jótlandi og fórust þar 1000 manns.

árið 1755 fæddist Marie Antoinette

árið 1785 var fyrsti björgunarbáturinn fundinn upp af Lionel Lukin.

árið 1869 náði vilti Billi Hickock ekki endurkjöri sem fótgeti í Ellis sýslu í Kansas.

árið 1880 var James A. Garfield kosinn 20 forseti Brandaríkjanna.

árið 1903 kom The Daily Mirror út í fyrsta skipti.

árið 1913 fæddist Burt Lanchaster.

árið 1914 lýsti Rússland yfir stríði gegn Tyrklandi.

árið 1924 birtist fyrsta krossgátan í bresku dagblaði.

árið 1952 fæddist Maxine Nigtingale (wtf)

árið 1957 átti Elvis Presley 8 lög á topp 30 í Bretlandi.

árið 1966 fæddist David Schwimmer (Ross í Friends)

árið 1969 fæddist Reginald Arvizu (Fieldy) bassaleikari KoRn

árið 1976 fæddist Tómas Freyr Kristjánsson snillingur með meiru

árið 1995 fer fyrsti þátturinn af Seinfeld í loftið á NBC

árið 2004 fagnar Tomminn afmæli sínu í einrúmi en býst við að fá marga marga pakka takk.

Þangað til næst……

JJJJEEEEEEEEEESSSSS
Posted on October 24th, 2004 at 5:31 pm by tommi

Rétt í þessu var Manchester United að vinna hrokagikkina í Arsenal 2-0. Ég er ótrúlega sáttur við þetta. Nú er bara að vona að Arsenal spili núna 49 leiki án þess að VINNA.

ÚÚÚÚÚÚÚÚÚÚJJJEEEEEEEEEEE

Svo er það bara slagurinn á San Siro á eftir

Þangað til næst……..

Geeeeeee
Posted on October 24th, 2004 at 12:56 pm by tommi

Það er þungt yfir Tommanum núna. Ástæðurnar eru í meginatriðum tvær. Það er fyrst og fremst stórleikur Manchester United og Arsenal á Old Trafford nú á eftir og svo stórleikur AC Milan á móti mínum heittelskuðu Inter mönnum. Hinn einhenti Tommi sér fram á mikla sófasetu í dag og ekki er ólíklegt að þetta verði dagur mikilla vonbrigða en að sjálfsögðu vonar Tomminn það besta.

Þvílíkt og annað eins æðruleysi að vera fokking handleggsbrotinn. Ma ma maður er bara ekki búinn að standa upp úr fokking sófanum alla helvítis helgina.

Ekki er ólíklegt að það komi annar pistill hérna á eftir en væntanlega má lesa af honum hvernig úrslit dagsins verða.

Þangað til næst…..

Sjæse
Posted on October 20th, 2004 at 12:12 pm by tommi

Update á heilsu Tommans:

Tomminn er ennþá handleggsbrotinn punktur.

Tomminn vill samt koma fram þökkum til allra sem sýnt hafa samhug í verki og commentað hjá Tommanum.

Þar sem að það er frekar leiðinlegt og pirrandi að vélrita einhentur þá ætla ég nú að hafa þetta stutt í dag aight.

Kallinn mætti í vinnuna á mánudaginn. Hálf svona uppdópaður af parkódíni og soliz. Raggi sendi mig nú bara heim klst síðar sökum vosbúðar og slaks ástands á kallinum. Ég hef ekkert mætt síðan enda ennþá að drepast í fokking hendinni. Ég á að fara til læknis á föstudaginn þar sem statusinn verður tekinn á þessu sjitti.

Jæja, nú er maður orðinn nokk þreyttur, best að fara að spila CM sem eiginlega það eina sem maður gerir þessa dagana.

Handleggsbrotni maðurinn kveður að sinni.

Þangað til næst…..

Broken
Posted on October 15th, 2004 at 4:04 pm by tommi

Þar kom að því að kallinn slasaði sig af einhverri alvöru í boltanum. Í gærkvöldi fór maðurinn eldhress í bolta upp í Fylkishöll, klæddi mig í fótboltagallann grunlaus um að 43 mín síðar þá yrði ég emjandi af sársauka á sama stað.

Þannig var að Tomminn var orðinn frekar æstur eins og svo oft áður og í þessu tilfelli ætlaði hinn ógurlegi Tommi að vera á undan í boltann þegar hitt liðið var í skyndisókn. Boltinn kemur skoppandi í mannhæð og Tomminn hoppar upp í þeim tilgangi að pota tánni í boltann áður en andstæðingurinn sem var að koma æðandi myndi ná að skalla boltann. Tomminn hoppar upp eins og áður sagði og á sama tíma kemur andstæðingurinn askvaðandi, við lendum saman og þar sem að Tomminn var í loftinu þá gat hann enga björg sér veitt og snar snerist í loftinu og kem svona líka helvíti illa niður. Lendi ofan á vinstri hendinni á mér og brýt á mér úlnliðinn.

Sjokkið sem kom þegar ég stóð upp og sá hendina á mér var svakalegt. Og ekki hjálpaði að sjá andlitin á strákunum. Uuuuussss þeir voru liggur við fölari en ég. Mér var ýtt náfölum inn í búningsklefa þar sem ég gat látið kalda vatnið renna yfir hendina, sem var augljóslega brotin því að það var ágætis slinkur á henni.
Atli B og L kappi þeyttist í sturtu og skutlaði mér svo beint niður á bráðamóttöku. Þegar þangað var komið þá fór ég bara í röðina eins og sönnum heiðursmanni sæmir en þegar hjúkkan í móttökunni sá mig þá fékk maður nú sérstaka flýtimeðferð. Mér var vísað inn þar sem að var fullt af liði í hvítum sloppum sem göptu af undrun og hrylling þegar maður labbaði framhjá, ekkert voðalega traustvekjandi fyrir mig, maður var farinn að sjá fyrir sér að missa hendina hreinlega.
Svo er manni sagt að leggjast á bekk og þar fékk kallinn bara 5 ml af morfíni beint í æð. Eftir það varð allt voðalega fínt bara. Mér var ýtt inn í einhverja stofu þar sem að brotið var gegnumlýst, fyrir mér leit þetta ekkert rosalega vel út þar sem að úlnliðskúlan var fyrir ofan beinið en ekki þar sem að maður hafði lært í líffræði í 6 bekk. En læknirinn var voða sáttur og sagði að þetta væri ekki svona slæmt. Enda var mér skítsama… ég var á morfíni.

Svo fer læknirinn að deyfa brotið, hann stingur einhverri meters nál á kaf í bólguna og ég fann hvernig hann potaði nálinni nokkrum sinnum í beinið þangað til hann komst á milli beinanna til að deyfa. Aaaah næs, sársaukinn minnkaði. Svo var ég sendur upp í röntgen þar sem brotið var myndað. Þegar það var búið skoðaði læknirinn myndirnar og svo tók helvíti við.

“Þú finnur aðeins til” sagði doksi, AÐEINS MÆ ES. Þetta var versti fokking sársauki sem ég hef fundið. Eitt stk læknanemi hélt hendinni við olnboga, eitt stk hjúkka stendur hinumegin við rúmið og segir mér að slaka á (je ræt) og læknirinn togar og togar í fokkin brotið til að laga það til og þetta voru engin smá átök, gæinn þurfti að halla sér aftur og beita líkamsþunganum við að toga. Þegar þessu helvíti var lokið var maður gipsaður, sendur í röntgen aftur til að sjá hvort þetta væri ekki rétt og gengið frá gipsinu. Svo fékk maðu 4 parkodin forte í nesti og lyfseðil upp á fleiri.

Í dag er maður sárkvalinn og uppdópaður. Ef einhver á morfín sem hann má missa þá væri það vel þegið.

Þangað til næst……

Chubbachubbachei
Posted on October 13th, 2004 at 10:49 pm by tommi

Piff, var að horfa á Íslinga leyfa Svíasveppunum að taka sig í þurrt. Frekar slappt hjá þeim. Svo horfði ég á ze Engrish vinna “sannfærandi” sigur á Azerbædjannshitcrap….. NOT.
Frekar slísí kvöld semsagt.

Eitt sem Tommus hefur verið að spá í. Eru allir hættir að nenna að kommenta hérna??? Eini sem gerir það er ég og lufsan. Hvusslags eiginlega er þetta bara??? Maður er bra sár og að missa hár. Reyndar var það byrjað á undan en kommentaleysið er ekkert að hjálpa manni hérna.

Mæ men Soffi reynir að draga kallinn vestur um helgina. Spurning hvað maður á að gera. Enginn skjár 1 fyrir vestan og leikur með mínum heittelskuðu Man Jú í sjónvarpinu á saturdei aight. Togað í mann úr báðum áttum… Júnæted… Soffi… Júnæted… Soffi….djíííí töff tjójs.

Kíp opp ðe kommenting sjitt jú pípol aight…

Þangað til næst……

Hell Je
Posted on October 12th, 2004 at 12:20 pm by tommi

Björn selur réttu græjuna og Tommi flakkar á netinu. Svona er dagur Tommans í hnotskurn enda lítið um gæsir þessa dagana. Þamba kaffi frá Beygluhúsinu meðan kisi segir mu.

Hérna er mynd af frk. E.E þar sem hún reynir að forðast lítinn hund. Svo er mynd af hundinum:

Ótrúlegt að stelpan skuli hræðast þessi litlu sætu kríli.

Svo eru komnar myndir af Tomma Hvanndal inná netið.

Það var stuð að koma í krummaskuð og henda sér í puð aight

Þangað til næst……

« Previous Entries