Slöngur
Posted on November 29th, 2004 at 6:59 pm by tommi

Rétt upp hend sem finnst pylsur góðar……

Hélt það.

Þá mæli ég með Biggabar niður við Sundhöllina. Frábærar pylsur þar á ferð. Mæli með að þið gerið ykkur ferð þangað og biðjið um Elliot’s special eða Double shotgun. Þetta eru vinsælustu réttirnir á Biggabar og svo skemmir ekki fyrir að hafa hressan afgreiðslumann en ekki einhverja tjéllingu með flösu sem ætti frekar heima í mötuneytinu í Billy Madison.

Höddi Páls fær hrós. Haldiði barasta ekki að kallinn hafi boðið okkur Rúnu í kvöldkaffi á laugardagskvöldið. Sagðist ætla að baka en ég tók því nú bara sem gríni. En svo var kallinn bara klár með súkkulaðiköku á kantinum ansi þéttur áðí. Þvílíkt gott að maður fékk bara sykursjokk við þetta hélvíti.

Svo voru það Benni og Iðunn sem buðu okkur í aðventukaffi í gær. Smákökur og geggjað góðar brauðbollur á línuna og svo heitt kakó til að toppa þetta.

Takk kærlega fyrir mig jamm jamm.

Þangað til næst……

Long tæm nó hír
Posted on November 26th, 2004 at 9:02 pm by tommi

Flöskudagur, föstudagur, fötudagur whatever.

Heyrst hefur……

að Jói Fel sjálfur sé að standa sig í rúgbrauðsgerðinni


Jói kann sko til verka við eldhúsvaskinn

að Idolið sé nú með vinsælasta sjónvarpsefninu á Borðeyri.


Hér eru allir bæjarbúar spenntir yfir því hvað Bubbi segir

að hún Fanney Dóra hafi fengið hlutverk í söngleiknum Casper ðe frendlí góst


Hún lifir sig gjörsamlega inní hlutverkið

að forseti vor hafi farið í andlitslyftingu.


Óli er hress eftir aðgerðina

að sumir séu að lifa sig full mikið inn í gangsta lífernið í Reykjavíkinni.


Þetta er nú full mikið af því góða

að Tommi hafi fundið nýfundnaland sem þá var nýfundið… eða eitthvað þannig


Tomminn var stoltur með fundinn

að back in the day hafi Tommi verið stærri en Ninni


Í þá gömlu góðu daga

að Sleggjan láti nú ekki sitt eftir liggja þegar kemur að klósettferðum.


Sleggjan er mikið klósett dýr

að Tommi, Ninni og Svarthöfði hafa stofnað gengi saman.


R2D2 fær stundum að flækjast með

að Torfi bróðir hafi á dögunum skellt sér á handboltaleik öllum að óvörum.


Torfi sem er annálaður körfuboltaáhugamaður kom öllum á óvart með þessu athæfi sínu

að Maggi Jobba og Rúna Jobba séu öllum stundum á ebay að reyna að gera góð kaup.


Hérna eru systkinin nýbúin að fjárfesta í tólf hjólkoppum af Oldsmobil

Gott í bili.

Þangað til næst……

Jæja folks
Posted on November 22nd, 2004 at 9:00 pm by tommi

Ég verð nú hreinlega að viðurkenna eitt. Ég hef fundið nýja ást í mitt líf. Ástin mín nýja er með mér öllum stundum núna. Hún er yndisleg. Malar svo ljúft til mín þegar ég þrýsti á hana til að kveikja á henni. Mér líður illa að fara frá henni á morgnana þegar ég held til vinnu. En það er yndislegt að koma til hennar á kvöldin aftur. Hún tekur alltaf á móti mér með malinu sínu ljúfa sem fyllir mig hugarró.

Rúna mín er nú ekki par sátt með þetta en ég er að sjálfsögðu að tala um nýju Dell Dimension 8400 vélina mína. 3.2 Ghz pentium 4 örgjörfi, 160 Gb Sata diskur, Ati Radeon X800 skjákort, 8 USB tengi (2 að framan), firewire, Dual layer DVD skrifari. úúúújeee. Hún er yndisleg. Svo er það nýji Football Manager 2005 sem tók dágóðann tíma af helginni.

Já hún Rúna MÍN er ekki par sátt eins og áður sagði og þarf maður kannski eitthvað að fara að veita henni meiri athygli áður en hún gefst upp á mér ehe :/

En vindum okkur að öðru. Síðan ég handleggsbrotnaði hef í lítið geta hreyft mig annað en að ganga um. Nú er svo komið að mallakútur Tommans er farinn að vaxa örlítið. Mætti halda að ég sé sjálfur óléttur en svo er nú ekki. Maður verður nú að fara að gera eitthvað í þessu áður en illa fer hmmm. Ekki það að ég vilji ekki sýna henni Rúnu minni samhug í verki og safna bumbu henni til samlætis en það finnst mér bara ekki viðeigandi því ég gæti ekki losnað eins hratt við hana og hún. Svo má maður ekkert fara í bolta fyrr en fyrsta lagi eftir áramót. Því er nú helvítis ver en svona er þetta bara. Átak framundan hjá Tommanum. Raggi vinur minn ætlar að taka mig í einkaþjálfun og verð ég að lúta að lögum hans næstu mánuði…. gúlp.

Football Manager 2005 er málið.

Þangað til næst…….

Geisp
Posted on November 20th, 2004 at 1:17 am by tommi

Föstudagskvöld…. Ísfokkingkallt úti. Það mætti halda að maður væri aftur kominn norður fjandinn hafi það. Þetta er ekki eðlilegt svona í nóvember. Maður var alveg farinn að venjast þessum veturlausu tímum þegar haustið var fram í janúar og vorið kom í mars. Eeeeen neeeeiiiii auðvitað þarf að koma bruna gaddur svo að aumingja Tommi litli þarf að blása inní læsinguna á bílhræinu á hverjum morgni sem endar yfirleitt á því að Tomminn festir sínar þykku varir á bílhurðinni þangað til einhver góðhjartaður aumkvar sér yfir hann og kemur með heitt vatn. Aumingja Tommi þarf að vera útúr dúðaður að skafa hrímið af bílrúðunni með gamalli kasettu með Haraldi í Skríplalandi á hverjum morgni. Aumingja Tommi þarf að keyra í 10 mínútur þangað til miðstöðin í bílnum tekur við sér en þá er Tommi yfirleitt kominn á leiðarenda. Ekki meira svona takk.

Eitthvað hefur brotna hönd Tommans vaxið asnalega saman því hún er rammskökk. Mér líst bara ekkert á þetta. Fer aftur til læknis í des og læt kíkja á þetta.

Pólífónískir hringitónar er málið.

Þangað til næst…….

Takk
Posted on November 18th, 2004 at 6:56 pm by tommi

Takk kærlega fyrir allar hamingju og velfarnaðaróskirnar.

Annars er allt í gúddí hér á þessum bæ. Menn farnir að sjóða sér ýsu og ég veit ekki hvað og hvað.

Spinn í þinn vef
á meðan ég sef
bla bla bla

….SORP

Jónsi og félagar að meika sveittan hest.

Kominn með nýja tölvu. Dell Dimension 8400. Magnað tæki alveg. Svo er hún alveg mega hljóðlát annað en hinn djöfulsins þotuhreyfillinn. Ha Gaui. Ha, hver á þennan jakka???

Þangað til næst……

Undarlegt
Posted on November 14th, 2004 at 11:42 pm by tommi

Það er erfitt að útskýra tilfinninguna þegar maður horfir á hluta af sjálfum sér á tölvuskjá inni á læknastofu í fyrsta skiptið. Maður fyllist einhverri undarlegri lotningu gagnvart lífinu. Ég meina… þegar maður horfir á eitthvað fyrirbæri sem læknirinn útskýrir sem 2 cm kraftaverk sem á eftir að verða að barni… mínu barni. Maður getur ekki annað en verið svolítið hræddur. En hræðslan breittist fljótt í lotningu gagnvart lífinu og ég labbaði klökkur út haldandi á mynd af þessu fyrirbæri.

Þeir sem ekki hafa áttað sig á því nú þegar að þá er hún Rúna mín ólétt. Komin 3 mánuði á leið. Allt að gerast hjá gamla. Loksins segja sumir.

Vorum fyrir vestan um helgina til að tilkynna familíunni tíðindin. Allir voða happy með þetta. Svo er bara að vona að allt gangi vel með þetta. Hringi væntanlega í restina af ættingjunum á morgun og læt vita.

Eníveis þá er þetta gott í bili.

Þangað til næst……

Loksins fokking slúður
Posted on November 12th, 2004 at 1:04 am by tommi

Já dömur mínar og herrar, þá er komið að því. Brotna hönd Tommans er öll að gróa og það er kominn tími á eins og eitt gott föstudagsslúður aight.

Heyrst hefur…….

að Heisi hinn sveitti sé nú að æfa sig af miklu kappi fyrir árlegu John Travolta keppnina sem haldin verður á Borðeyri um næstu mánaðarmót.


Eins og sést hérna þá er Heisi í fínu formi þessa dagana

að Tryggvi Hadda hafi rétt svo unnið bolann Guttorm í keppninni um lengstu tunguna.

Tryggvi er með ansi langa tungu

að Heisi og Ninni hafi einu sinni verið litlir.


Það hefur nú eitthvað tognað úr drengjunum

að rauða línan hjá fröken E.E sé starfrækt af mikilli leynd.


Þótt ótrúlegt megi virðast að þá er frk E.E ekki að tala við mömmu sína á þessari mynd

að litli trommuleikarinn sem hún Sigga Beinteins söng um hérna um árið sé í raun ættaður úr Grundarfirði.


Litli trommuleikarinn er náskyldur litlu stúlkunni með eldspýturnar

að partýgeiturnar Rúnka og Svínka máli yfirleitt bæinn rauðan þegar nær dregur áramótum.


Vinkonurnar eru yfirleitt eiturhressar

að Rokklingarnir hafi átt kombakk ársins þegar þeir létu plata sig í að syngja afmælissönginn fyrir Kibba Rabba.


Rokklingarnir voru klappaðir upp þrisvar eftir að hafa tekið guttavísur

að súludansmeyjarnar á Club Sóðal séu af íslensku bergi brotnar.


Dorada kemur fram undir dulnefni

að asninn á myndinni heiti Rúna.


Múldýrið var ekki sátt við að hafa þennan asna á bakinu

að Tinna Magg sé iðulega í fíling þegar hún fær ókunnugt fólk til að pota í sig.


Þessi mynd tekur af allan vafa

að Þjóðlagatríóið “þrír á palli” syngi yfirleitt af mikilli innlifun þegar þeir eru nýbúnir að borða sinnep.


Hérna eru félagarnir nýbúnir að innbyrða sitthvora dolluna af dijon sinnepi

að þeir sem reyni að sæða belju án þess að hafa farið í dýralæknanám eigi ekki von á góðu.


Eins og þessar myndir bera með sér að þá er þetta háalvarlegt mál

að Ísdrottningin sé sólgin í saltaðar geirvörtur með kavíar.


Hér er Ísdrottningin að gúlla í sig 37undu geirvörtunni

að veldi karla sé endanlega hrunið.


Þessi mynd náðist rétt eftir að síðasta vígið féll

Held að þetta sé nú bara orðið nokkuð gott í bili.

Endilega commentið á hvernig til tókst.

Þangað til næst……

Dong
Posted on November 8th, 2004 at 8:32 pm by tommi

Jæja jæja, hvað er að fokking frétta leidís end djentelmenn aight. Það eru nokkrir dagar liðnir síðan maður hripaði eitthvað hérna. Kannski kominn tími á að skrifa eitthvað hérna. Þá er nú bara málið… Hvað á maður eiginlega að skrifa???

Ég er allavena nokkurnveginn búinn að lofa sjálfum mér að koma með eitthvað feitt slúður næsta föstudag. Enda nóg um myndir því kallinn er búinn að vera duglegur að skanna inn myndir með skannanum sem ég fékk lánaðann. Afraksturinn má finna á myndasíðunni. Þar eru nokkrar myndir frá tjah, t.d. krít, London, Manchester og svo nokkrar fylleríismyndir frá drykkjuferli Tommans.

Hérna eru nú nokkur dæmi.


Þangað til næst…..

Hóra
Posted on November 4th, 2004 at 7:36 pm by tommi

Jú eins og þið hafið kannski tekið eftir að þá seldi ég Dassa sál mína með því að setja upp svona auglýsingar fyrir kallinn.

Semsagt alli á Nellys og vafra svo á geiminn aight.

Þangað til næst……

Góður dagur
Posted on November 3rd, 2004 at 11:38 am by tommi

Ammlisdagurinn var góður. Get nú samviskulaust mælt með að fólk fari á Ítalíu restörant til snæðings

Þangað til næst….

« Previous Entries