Bjúgol
Posted on December 29th, 2004 at 4:29 pm by tommi

Lífið í Reykjavík er leiðinlegt. Hangi öll kvöld í þessari tölvuskruddu og reyni að finna mér eitthvað til dundurs. Hef ekki fyrir mitt litla líf þorað að prófa Call Of Duty síðan ég fékk tremmakastið um daginn. Langar til Grundarfjarðar þar sem allir ástvinir manns eru. Hnuss. Sem betur fer er Ninnalingurinn á leiðinni í bæinn es ví spík. Spurning um burger á eftir.

Ég heyrði furðulegan disk um daginn. Stuðningsmanna disk með Snæfell þar sem Þórunn Antonía fer mikinn. Mæli með því að allir sem vettlingi geta valdið taki sig til og hlusti á þennan dularfulla disk. Ég veit ekki alveg hvað þeir ágætu menn í Snæfell eru að reyna að töfra fram á þessum disk, hvort það er stemming eða fagrir tónar veit ég ekki en eitt veit ég þó, það er það að þessi diskur lét mig persónulega fá fiðring í magann. Og gott ef það vottaði ekki fyrir pínu gæsahúð líka. En það var á alveg röngum forsendum. Eru þeir ekki að grínast með þessu???? Þetta er alveg skelfilegt. Gæsahúðin myndaðist því ég skammaðist mín fyrir að búa á Snæfellsnesi og fiðringurinn í maganum myndaðist vegna hláturkrampans sem fylgdi á eftir. Jeminn eini. Þetta gæti alveg eins verið sungið af stelpunni sem söng í appelsín auglýsingunni í fyrra, þetta er alveg hræðilegt. En samt , Áfram Snæfell never ðenn less.

Er búinn að henda inn nokkrum myndum frá jólahaldinu.

Þangað til næst……

Fín jól
Posted on December 26th, 2004 at 10:57 pm by tommi

Já, þetta er búið að vera alveg hééééélvíti fínt.

Ég fékk eftirfarandi jólagjafir.

Ástin mín gaf mér utanlandsferð fyrir tvo til einhverra af stórborgum evrópu. (ég á enn eftir að ákveða hvern ég tek með hehehehe)

Mamma og Gústi gáfu mér nýjann jakka og sparibuxur.

Pabbi og Sigrún gáfu okkur Rúnu örbylgjuofn og svo fékk ég ilmvatn

Ninni gaf mér Star Wars Trilogy DVD

Gústi Alex og Hanna gáfu mér Lord Of The Rings, The Return Of The King special edition DVD

Anna og Jobbi gáfu mér nýju Man Utd treyjuna

Steini Jobba gaf mér nýja leðurhanska

Maggi Jobba gaf mér töffarabelti

Júlli Jobba og Arndís Jenný gáfu mér debetkortahulstur með ágrafinni áletrun

Begga Jobba gaf mér geggjað flotta skyrtu

Hanna amma og Ívar afi gáfu okkur Rúnu inneign í Smáralind

Ingunn amma gaf okkur Rúnu blandara

Ragna og Haukur gáfu okkur salat skeiðar

Glæsilegar gjafir handa Tommanum.

Svo er nú ekki talað um allan matinn sem búið er að troða ofaní kok í gríð og erg. Hamborgarahrygg, lambahrygg, brauðtertur, hangikjöt, kjúkling omfl. Uuuusssss. Maður situr bara á blístrinu allan daginn, horfandi á Star Wars í flotta skjávarpanum hans Magga Jobba…. úúúúúúújjjeeeeee.

Góð jól

Þangað til næst…….

Jólin smólin
Posted on December 24th, 2004 at 5:06 pm by tommi

Jæja, gleðileg jól allir saman og farsælt komandi ár. Þakka liðið.

Kveðja
Tommi Jobba

Þangað til næst……

Alive
Posted on December 22nd, 2004 at 1:15 pm by tommi

Jú kallinn er lifandi. Aleinn í bænum, konan farin vestur, bara ég og Steini, mikið vinna, mikið stress, læt heyra betur í mér seinna.

Þangað til næst…..

Síðbúið slúður
Posted on December 18th, 2004 at 6:15 pm by tommi

Jæja, ég hef ákveðið að koma með smá slúður í tilefni af falli ríkisstjórnarinnar síðdegis.

Heyrst hefur…..

að slegist sé um öll sæti í nýju neðanjarðarlestinni sem gengur á milli Breiðholts og Kópavogs.


Þessi þrjú voru æst í að komast fremst í lestina.

að Boy George og félagar hyggi á gríðarlegt comeback á næsta ári.


Kamakamílíjon er svaka slagari.

að nokkur viðrini hafi sést í kringlunni í jólaösinni.


Viðrinin voru hress þegar þau voru nýkomin úr Tiger.

að Tommi Jobba (41) sé óléttur


Tommi er stolltur af bumbunni.

að Arnar (Dahmer) Pétursson sé iðinn við að mæta í ókunnug hús til að leggja sig.


Arnar (14) er oft ansi þreyttur.

að Heisi (28) hafi handsalað samning um kaup á 6 tonnum af kúrbítsmjöli sem á að auka kyngetu tröllsins.


Heisa veitir ekkert af magninu.

að Tryggvi Hadda (31) hafi sést með myndar spúsu (12) upp á arminn á Ömmukaffi um daginn.


Tryggvi og spúsan virtust voða happy.

að Heisi hafi látið gamlann draum rætast þegar hann ákvað að klæða sig í gamla sveitta treyju af Tryggva Hadda.


Heisi var voðalega stoltur af treyjunni.

að Ninni Dittu (68) hafi í fyrsta skiptið á æfinni smakkað hor úr nefinu á sjálfum sér.


Ninna fannst horið ekki svo gott á bragðið eins og sjá má glögglega á þessari mynd

Jæja, nenni ekki meir.

Þangað til næst…..

Gúrkutíð
Posted on December 18th, 2004 at 2:02 pm by tommi

Já góðir hálsar. Það er gúrkutíð hjá Tommanum núna og hann veit bara ekkert hvað hann á að skrifa um. Þannig að hér flýgur ein hrakfallasaga af Tommanum sjálfum. Alveg sjóðheit síðan í gær.

Þannig var mál með vexti að maður er orðinn fölur og fár og þá var brugðið á það ráð að kaupa eitt stk ljósakort fyrir mig og spúsuna. Svo var farið og skellt sér í ljós í gær og ekkert flóknara en það að kallinn sem leit út eins og hundrað ára gamall hundaskítur, skað brann allur og lítur núna út eins og sólbrúnn úthafskarfi á túr. Bakið, lærin, kálfarnir, hendurnar og maginn, allt eldrautt og sjóðheitt. Það er hægt að spæla egg og steikja beikon á maganum á mér og hefur Steini Jobba nýtt sér það til fullnustu því kallinn hefur steikt nokkrar fleskjur á mallakútnum.
Þetta er frekar óþægilegt ástand en búast má við að roðinn verði vonandi búinn að breytast í fallega brúnku fyrir jól.

Þangað til næst……

Afmæli í dag
Posted on December 14th, 2004 at 7:11 pm by tommi

Ninni litli á afmæli í dag og fær í verðlaun vikuáskrift af gestgjafanum, TIL HAMINGJU NINNI.

Já, til hamingju með daginn kallinn minn.

Þangað til næst……

Of mikið af tölvuleikjum
Posted on December 11th, 2004 at 3:27 pm by tommi

Ég varð fyrir undarlegri lífsreynslu í morgun þegar ég lá uppí rúmi á milli svefns og vöku. Þannig er mál með vexti að ég er búinn að vera veikur undanfarið og í þessum veikindum mínum hef ég verið svolítið duglegur að skjóta þjóðverja í Call Of Duty leiknum.
En svo þegar ég lá uppí rúmi í morgun og var að rembast við að vakna að þá, alltaf þegar ég lokaði augunum sá ég litla þjóðverja með byssur sem voru að beygja sig og fela sig, alveg eins og í leiknum. Frekar wierd. Svo var líka annað sem henti mig í gær þegar ég var nýbúinn að spila COD og var svo að vafra á netinu að þá keyrir svona stór vörubíll framhjá og hljóðið í honum var alveg eins og í skriðdrekunum í leiknum. Það skiptir engum togum nema að kallinn kippist allur til og fer í skotstöðurnar. En á 2 sekúndum var ég búinn að átta mig á að þetta var bara venjulegur vörubíll og ég væri bara venjulegur tölvunörd.

Ég er mikið að spá í að leggja Call Of Duty á hilluna í bili því maður er farinn að verða geðveikur á þessu.

Jamm, maður verður að fara bara aftur í solitaire held ég.

Þangað til næst…..

Veikindasullumbullsjiitt
Posted on December 10th, 2004 at 11:34 pm by tommi

Er það bara ég eða er alveg hrikalega leiðinlegt að vera veikur. Fyrir utan að vera búinn að spila yfir mig af tölvuleikjum þá hefur nú lítið verið hægt að gera sér til dundurs. Hérna koma nokkur dæmi um það sem ég hef aðhafst í veikindunum.


Ég hrellti Steina þegar hann átti að vera að læra fyrir próf


Ég hrellti rúnu þegar hún átti að vera að læra fyrir próf


Ég uppgvötvaði nýja nágranna í garðinum


Ég reyndi að brjóta saman þvottinn með þessum afleiðingum


Hvað maður getur verið brenglaður

En annars er maður allur að braggast og reikna ég með að skella mér í vinnuna í fyrramálið. Vonandi að það takist.

Það sem er í spilaranum núna:

This Love - Pantera (í minningu Dimebag Darrel)
One Second - Paradise Lost
Hurt - Nine Inch Nails
The Bitter End - Placebo
Sweet Soul Sister - The Cult
In A Little While - U2
Send The Pain Below - Chevelle
Killers - Iron Maiden
Wicker Man - Iron Maiden
Enjoy The Silence - Depeche Mode
Somewhere Only We Know - Keane
Dead Skin Mask - Slayer
Sugar - System Of A Down

Gott í bili.

Þangað til næst…….

Snörl
Posted on December 9th, 2004 at 10:34 pm by tommi

Snörl já, þannig hljómar maður ótt og títt þegar maður er veikur, veikur já. Helvítis ves. Búinn að hanga inni í 2 daga sjúgandi upp í nefið með dúndrandi hausverk og beinverki. Skjótandi þjóðverja í Call Of Duty leiknum í gríð og erg. Svona er það já.

Það er skiljanlega þungt yfir Grundarfirði þessa dagana, enda kannski ekkert skrítið. Það er alltaf erfitt þegar fólk kveður heiminn svona óvænt. Sérstaklega í svona litlu bæjarfélagi þar sem allir þekkja alla.

Hvað er maður búinn að vera að brasa síðurstu 2 daga??? Hmmm. Jú ég er búinn að vera í sama náttsloppnum samfleitt í 36 klst. Drekka 6 lítra af pepsi max, borða eina kjúklingasamloku frá KFC, 4 ofursamlokur ala Tommi, spila tölvuleiki í c.a. 12 klst, vafra um internetið í c.a 7.35 klst, sofa í c.a 15 klst, horfa á Champ League í 4 klst, bölva Liverpool í 0.04 klst, strjúki kviðinn á konunni í 3 klst, telja naflakusk í 0.07 klst, drekka eina drykkjarskyr og borða banana með því, 3 drykkjarjógúrt og 7 vítamínblöndur með sólhatt útí (jjjjaaakk).

Það er farið á saxast ískyggilega á mánaðarlaunin og ég á enn eftir að kaupa nokkrar jólagjafir :/ Vona að fjölskyldan sætti sig við jólagjafir úr Kolaportinu og Tiger. Er það ekki annars hugurinn sem gildir hehehehe.

Lög sem ég hef verið með á fóninum undanfarna daga:

Still Loving you - Scorpions
Word up - Korn
Fortune Faded - Red Hot Chilli Peppers
Holy Wars - Megadeth
South of heaven - Slayer
Still Waiting - Sum 41
So Far Away - Staind
Velcome Home (Sanitarium) - Limp Bizkit

Ásamt nokkrum öðrum. Úúúújjjeeee

þangað til næst……

« Previous Entries