Sunnudagskvöld
Posted on May 29th, 2005 at 10:50 pm by tommi

Það er nóg að gera þegar maður er í fæðingarorlofi. Nú ætla ég að leyfa ykkur að kíkja inn í týpiskan dag hjá mér.

02:38. Er vakinn frekar hranalega. Bregst illur við en læt mig hafa það að skipta á litla englinum mínum.

05:42. Vakinn aftur, aftur er búið að gera stórt í bleiuna og pabbi tekur sig til við að verka þetta. Þegar ég er nýbúinn að taka bleiuna er pissað yfir sig og út á gólf. Pabbi þarf líka að verka það hálf syfjulegur.

09:33. Rumska við nettan barnagrát. Litli er vaknaður enn einusinni og nú svangur. Ég stend upp og færi Rúnu prinsinn svo hún geti nú gefið honum að drekka.

11:52. Nú er að koma hádegi. Best að skrattast á lappir og reyna að gera eitthvað. Tek mig til og hendi í vél og byrja svo á uppvaskinu sem ég nennti ekki að gera í gærkvöldi.

12:07. Kíki á fréttir á netinu. Sé að Man Utd er að spá í hinum og þessum pappakassanum en Inter að fara að undirbúa sig í trilljónasta jafnteflið í sínum síðasta deildarleik á tímabilinu. Kíki á Vatnsberasíðuna og sé misjafnlega gáfuleg comment frá misjafnlega gáfulegum mönnum.

12:58. Tek einn hring á St.Andrews í PS2 tölvunni í Tiger Woods leiknum. Litli orðinn svangur enn einu sinni, Rúna gefur honum og ég fer svo með hann inná bað og skipti á honum.

13:30. Tek úr vélinni og hendi í þurrkarann. Átta mig á að ég er að þvo sumar flíkurnar aftur síðan í gær. Hmmm undarlegt. Bý um rúmið undir vökulu auga konunnar sem vill hafa þetta 140% hornrétt við stöðu sólar eða eitthvað svoleiðis.

14:11. Kíki aftur á netið til að sjá að það eru engar nýjar fréttir komnar síðan áðan. I got way to much time on my hands. Kíki á litla pjakk þar sem hann sefur í vöggunni sinni.

15:05. Skrepp aðeins út í búð, sjitt hvað það er gott að komast aðeins út. Rölti fram hjá hjólinu mínu sem er búið að standa óhreyft í eina viku. Damn thats lame.

15:12. Reyni að vera snöggur í búðinni. Kippi með pakka af bleium og svampþurrkum. Djöfull eru þessar bleiur dýrar. Hvernig fór fólk að þessu í gamla daga???

16:32. Kem heim og fæ augnaráð frá konunni yfir að vera svona lengi.

17:04. Ekkert í sjónvarpinu. Kveiki á Tiger.

18:30. Kíki á fréttirnar. Mjamm ekkert merkilegt þar.

19:05. Ath hvað er í sjónvarpinu um kvöldið. Mjamm ekkert merkilegt þar heldur. Horfi á búningatösku Vatnsberanna sem er búin að liggja á sama stað við útidyrahurðina síðan í síðustu viku. Fer að velta fyrir mér næsta leik.

20:42. Enn og aftur þarf að skipta á pjakknum. Hvernig er hægt að kúka svona oft, maður spyr sig.

21:31. Hoppa í snögga sturtu, aaahh þetta var hressandi. Stíg ofan í taubleiu með kúk…. djöfull &%#*# Ands(#”=) Helv(”#”)… aftur í sturtu til þess eins að þvo hælinn

22:38. Keyri lilla inn í herbergi til Rúnu sem er löngu sofnuð. Lilli þarf jú að fá að drekka þessi elska.

23:09. Bursta tennurnar og skríð upp í rúm. Við tekur erfið nótt með tilheyrandi bleiuskiptingum og barnagráti.

Góða nótt.

Svo viljum við Rúna óska Sollu og Stebba innilega til hamingju með litla prinsinn þeirra sem fæddist 28 maí

Þangað til næst…..

Sjitt
Posted on May 25th, 2005 at 11:07 am by tommi

Við feðgarnir vorum skildir eftir einir heima í annað sinn á hans stuttu ævi. Það er nú svo sem ekki frásögum færandi nema það að hún Rúna þurfti að fara til læknis í eitthvað tékk og við urðum einir eftir. Ég og litli kútur, eins og áður hefur komið fram. Þetta var allt í rólegheitunum, hann var bara sofandi og ég við hliðina á honum að skoða internetið. Þannig gekk það í c.a. klst þangað til litli prinsinn fer eitthvað að rumska og ergja sig. Big Daddy ákveður þá að kíkja með hann að skiptiborðinu og ath hvort að það séu einhverjar framkvæmdir í bleiunni. Það var nú ekki mikið. Smá bremsufar og svo var hann pissu blautur. Big Daddy fannst það nú ekki mikið tiltöku mál og byrjar á því að vippa krílinu úr fötunum og svo bleiunni. Tekur svo blautann svamp og ætlar að taka sig til við að þrífa guttann. Þá sér Big Daddy einhvern roða í kinnum guttans og svo kemur þessi svaka sprenging og haldiði bara ekki að krílið hafi kúkað yfir pabba sinn. Það var þá þakklætið. Ekki vissi ég að svona lítið barn gæti gert stykki sín upp á maga….. magann á mér. Uuuuussss, maður þurfti bæði að skipta um bol og buxur. það var bara slembings lukka að ég þurfti ekki að skipta um sokka líka. Á meðan lá hann á skiptiborðinu og hjalaði voða sætt og var hinn rólegasti. Sem betur fer fyrir mig kom Rúna heim á meðan þessu stóð og gat reddað mér. Svona er líf okkar í hnotskurn þessa dagana.

Þangað til næst….

Dagur tvö
Posted on May 21st, 2005 at 9:27 pm by tommi

Já, Arsenal vann United í FA bikarnum mjög óverðskuldað, en okkur feðgunum var alveg sama og höldum ótrauðir áfram að halda upp á þetta merkilega lið.

Þetta er búið að vera mikið ævintýri. Á fimmtudagskvöldið rétt eftir að Selma datt út úr Júróvisjón þá fer Rúna að finna reglulegar hríðir og við byrjum að taka tímann á þessu, þá var þetta með 5-8 mínútna millibili og stóðu yfir í 30 sek í hvert skipti. Við hringjum niður á fæðingadeild og boðum komu okkar þangað.
Þegar þangað var komið fór Rúna í skoðun og var þá komin með 3 í útvíkkun. Þá var ekkert aftur snúið og þetta var mikið líkamlegt púl fyrir Rúnu en andlegt fyrir mig. Svo loksins kl 10:30 morguninn eftir fæddist þessi fallegi drengur og vó 3700 gr og var 53cm. Hann var semsagt rétt tæpar 15 merkur við fæðingu. Tæpum klukkutíma eftir fæðinguna tók hann sig til og fékk sér að drekka hjá mömmu sinni. Voðalega duglegur. Svo núna er c.a. milljón myndum seinna og nokkrum klst er hann orðinn eins og hálfs dags gamall og mjög sprækur. Reyndar gerir hann lítið annað en að sofa, drekka, kúka og pissa og það er mjög gott. Hann orgar ekki mikið en hjúkkan sagði að það kæmi nú á morgun eða hinn þegar hann fer að vera svangur í alvörunni (gúlp) en þá ætti hann að fara að orga svolítið hressilega.

Þetta er alveg ótrúlegt og við Rúna erum bæði alveg rosalega hamingjusöm með þennan litla gleðigjafa. Svo viljum við þakka fyrir allar kveðjurnar frá ykkur. Takk fyrir okkur

Pabbakveðja

Þangað til næst……

Mikil gleði
Posted on May 21st, 2005 at 9:24 pm by tommi

Ég held svei mér þá að hann Scott Stapp vinur minn hafi hreinlega hitt naglann á höfuðið með þessum texta.

With Arms Wide Open

Well I just heard the news today
It seems my life is going to change
I closed my eyes, begin to pray
Then tears of joy stream down my face
With arms wide open
Under the sunlight
Welcome to this place
I’ll show you everything
With arms wide open
Well I don’t know if I’m ready
To be the man I have to be
I’ll take a breath, take her by my side
We stand in awe, we’ve created life
With arms wide open
Under the sunlight
Welcome to this place
I’ll show you everything
With arms wide open
Now everything has changed
I’ll show you love
I’ll show you everything
With arms wide open
If I had just one wish
Only one demand
I hope he’s not like me
I hope he understands
That he can take this life
And hold it by the hand
And he can greet the world
With arms wide open…

Þetta er svei mér búið að vera æðislegt.

Þangað til næst…..

Óskírður Tómasson
Posted on May 20th, 2005 at 2:45 pm by tommi

Já, þá er Rúna loksins búinn að eiga og kallinn er gjörsamlega að springa úr stolti. Við áttum strák sem vó 3700 gr og er 53 cm, þar af leiðandi tæpar 15 merkur.

Svo eru fleiri myndir inni á myndasíðunni.

Ég er svo hamingjusamur að ég er gjörsamlega að fara úr límingunum. Móður og barni heilsast vel bara svo að það komi einhversstaðar fram.

Þangað til næst……

Afmælisstelpa
Posted on May 19th, 2005 at 11:28 am by tommi

Haldiði loftinu í ykkur, ég er ekki orðinn pabbi strax en ég get bara ekki sleppt því að óska ástinni minni til hamingju með daginn. Já, hún Rúna mín er 24 ára í dag og alveg komin á steypirinn.

Til hamingju með daginn ástin mín

En næsti pistill verður ekkert fyrr en Rúna er búin að eiga.

Þangað til næst……

Sólbruni
Posted on May 16th, 2005 at 8:58 pm by tommi

Ég og Rúna fórum vestur um helgina, fórum aðeins á pallinn hjá Pabba og Sigrúnu og að sjálfsögðu tókst mér að sólbrenna í andlitinu og á höndunum. Er núna eins og karfi með skitu. Rúna brann líka á bringunni greyið. Annars er hún núna gengin 39 vikur og einn dag þannig að þetta fer allt að koma. Við fórum í hjartalínurit á föstudaginn og í dag og hjartslátturinn hjá litla krílinu er fullkomlega eðlilegur sem betur fer. Bumbubúinn er alltaf að sparka og hamast á fullu, nóg að gera.

Svo í dag komum við suður. Ég kom á hjólinu en Rúna kom með Gilla og Alexander litla, eftir hjartalínuritið fórum við Jón Frímann og Steini á fótboltaleik, Valur - Grindavík þar sem fallkandídatarnir í Grindavík stóðu undir nafni og töpuðu 3-1 og Gummi Ben setti eitt. Hann var einusinni hetja.

Ég hef ákveðið að skrifa ekkert þangað til að ég er orðinn pabbi, það ætti nú samt að vera fljótlega þannig að þið þurfið ekkert að örvænta, þið dyggu lesendur…. allir þrír.

Tommi út

Þangað til næst…..

Uppstigningardagur
Posted on May 5th, 2005 at 6:15 pm by tommi

Frí í dag. Sit hérna í tölvunni og as we speak er love roolercoaster með Red Hot Chilli Peppers að rúlla í mp3 spilaranum og kallinn er í svaka fýling, enda heví góður slagari þar á ferð.

Hérna kemur mynd af Vigga sem færðist þrjú sæti neðar á mótorhjólatöffaralistanum með þessu atviki. Viggi er sem stendur í 6 sæti á eftir mér, Magga, Ninna, Þórði og Finnboga.

Það er alveg svakaleg bongóblíða í dag. En samt svona gluggaveður því það er doldið chilli úti. Það eru ansi margir sem ætla að bregða sér í bæjarferð um helgina því mamma og Ninnalingur eru víst á leiðinni og mér skilst að litla púddan hún Hanna systir mín sé með í för. Það verður örugglega heilmikið activity í borginni þegar þessi hersing kemur. Annars er ég vonandi að fara að keppa eitthvað í fótbolta en það kemur í ljós síðar. Vatnsberar rokka aight.

Fór í bíó í gær og sá eina súrustu mynd sem ég hef nokkurntímann séð eða The Hitchhikers Guide To The Galaxy. Vá segi ég nú bara. Hún var mega fyndin og Alan Rickman fór á kostum sem vélmenni með geðhvarfasýki á háu stigi. Reyndar var svo stappað í salnum að við Steini og Gúndi þurftum að sitja á öðrum bekk á endanum. Ég held ég hafi heldur ekki séð svona mikið samansafn af nördum á einni mynd síðan ég fór á Star Wars episode 2 hérna um árið. Svo er ég að spá í að hanna svitalyktareyði fyrir nörda því lyktin í salnum var eins og í fjárhúsinu hjá Tryggva Rolluríðara iff jú gett mæ drift. Hnuuussss.

þangað til næst…..

Jæja Liverpool menn
Posted on May 4th, 2005 at 12:09 pm by tommi

Þar hafiði það með óhyggjandi hætti….

SMELLA —HÉR—

Þangað til næst…..

Jeeeeeeessss
Posted on May 3rd, 2005 at 5:53 pm by tommi

Þessi langi vinnudagur er loksins að verða búinn. Það er svo lítið að gera hérna að það er ekki einusinni fyndið.

Fótboltaæfing í kvöld hjá hinu stórmerkilega liði Vatnsbera og öllum velkomið að mæta niður í Safamýri að berja stjörnurnar augum kl 22:00 í kvöld. En fyrst verður það leikur Lifrapolls og Chel$ki í beinni. Ingi vinnufélagi er búinn að veðja við Ásgeir sölustjóra um að ef Lifrapollurinn dettur út þá mætir Ingi í kjól í vinnuna á föstudaginn og svo öfugt. Þannig að ef Chelsea vinnur þá hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að mæta niður í verslun EJS á föstudagsmorguninn og sjá Inga í kjól að afgreiða. Hann þarf bara að klæðast kjólnum fram að hádegi þannig að mætið tímanlega. Nú hinsvegar að ef Liverpool slysast áfram þá eiga allir að mæta í EJS fyrir hádegi og biðja um að fá að ræða við Ásgeir Ásgeirsson. Hann verður þá væntanlega klæddur í kjól og fínt hehehe.

Þangað til næst…..

« Previous Entries