Jæja
Posted on July 29th, 2005 at 2:28 am by tommi

Er staddur í bænum núna í örstuttan tíma. Skemmtileg helgi að baki. Grundarfjarðardagarnir voru snilld og veðrið var enn meiri snilld. Myndirnar eru að detta inn á myndasíðuna í þessum töluðu orðum og þær tala sínu máli.

Ég fer aftur vestur á morgun föstudag eftir að ég verð búinn að skutlast um allan bæ á hjólinu. Ég reikna með að vera fyrir vestann fram yfir skírn. En þess má geta að við Rúna ætlum að skíra núna 7 ágúst sem er sunnudagur. Skírnin verður í Grundarfjarðarkirkju og hefst athöfnin kl 14:00.

Þangað til næst…..

Grundó
Posted on July 25th, 2005 at 4:14 pm by tommi

Ég er í Grundarfirði, mjög lítið á netinu, myndir frá herlegheitunum koma síðar.

Þangað til næst….

Á góðri stundu í Grundarfirði
Posted on July 20th, 2005 at 8:48 am by tommi

Nú erum við flúin vestur, Grundarfjarðardagarnir eru um næstu helgi og vonandi að veðrið haldist eins og það er búið að vera núna síðustu daga.

Ég veit ekki hvað við verðum lengi en allavena eitthvað fram í næstu viku. Það verður fínt að komast aðeins í fjörðinn fagra.

Þangað til næst….

Komin heim
Posted on July 15th, 2005 at 2:05 pm by tommi

Rúna er komin heim aftur eftir mjög svo vel heppnaða aðgerð.

Takk fyrir hlýju straumana

Ég er glaður í dag

Þangað til næst….

Úff
Posted on July 13th, 2005 at 11:15 pm by tommi

Ég sit hérna við tölvuna í þungum þönkum. Nú á hún Rúna mín að fara í aðgerð í fyrramálið til að láta laga æðarnar í náranum eftir blóðtappann í vetur. Litli pjakkurinn liggur hérna við hliðina á mér og virðist alveg vera að fýla Sigurrós sem mjatlar ljúflega í mp3 spilaranum. Við verðum bara 2 á morgun því Rúna verður víst ekki orðin viðræðuhæf fyrr en einhverntímann seint annað kvöld. Hún er nú búin að vera dugleg að mjólka sig svo að stubburinn verði nú ekki svangur hjá pabba sínum. Nóg er hann nú búinn að öskra á mig fyrir. Æi ég veit ekki, þetta leggst ekkert voðalega vel í mann. Þoli ekki svona aðgerðarvesen. Í fyrri aðgerðinni var ég næstum farinn yfirum af stressi. Reikna með að þetta verði verra á morgun þar sem að maður verður með guttann líka.

Hlakka til þegar þetta verður afstaðið.

Þangað til næst…..

Túristapakki í gær
Posted on July 11th, 2005 at 3:40 pm by tommi

Já það var sko tekið á því um helgina. Á laugardaginn fórum við Jón Frímann, Ellen og familían í Fjölskyldu og Húsdýragarðinn. Þar var rölt um og kíkt á Guttorm gamla sem á víst ekki mikið eftir karlanginn. Í gær fórum við og kíktum á Suðurland, skoðuðum Gullfoss og Geysi og Þingvelli. Þetta var alveg góður 8 tíma rúntur á rútunni hans Jóns. Þræl fínt alveg þar sem að maður var að sjá Gullfoss og Geysi í fyrsta skiptið. Heví gaman. Afraksturinn má sjá á myndasíðunni.

Svo erum við í Vatnsberunum að fara að keppa stórleik í kvöld á móti Jóni Rafni og Halla í Sval. Þetta verður vafalaust stórslagur og hvet ég alla sem vettlingi geta valdið að mæta uppá Leiknisvöll kl 19:30 í kvöld.

Þangað til næst…..

Allt vitlaust
Posted on July 7th, 2005 at 11:29 am by tommi

Allt crazy í London. Bara sprengjur og læti marr uuussss.

Ég og Steini Jobba fórum á War of the worlds í gær. Fínasta ræma og olli ekki vonbrigðum hjá okkur. Hápunkturinn var nú samt sýnishornið úr King Kong, sjitt hvað hún verður svöl.

Þangað til næst….

Herregud
Posted on July 6th, 2005 at 12:59 pm by tommi

Pjúff, það hellist einhver bloggleti yfir mann á sumrin. Kannski að það sé rigningin eða eitthvað öööösssss.

Eníveis, þá var nú liðin helgi fín. Soffi afmælisbarn kom í heimsókn og við grilluðum voða fínt og fórum svo á Wig Wam á Gauknum. Fínasta stemming þar og eitís fílingurinn í algleymingi. Come on come on come on, love is all over me og allt það. Heví stemming. Á sunnudaginn þegar Soffi vaknaði kl c.a. 7 um kvöldið fórum við í Perluna og keyptum okkur köku og ís. Næse sjæse fýlingur þar á ferðinni. Fyrir utan að kökurnar og ísinn í perlunni er ekkert sérstaklega gott stöff.

Ég hygg á ferð til að sjá war of the worlds ef ég fæ einhvern með mér í það. Svo væri gaman að kíkja á Star Wars aftur áður en hún hættir. Spurning um að plata Hödda með sér í þetta. Sjáum til.

Svo held í að Rutlan eigi afmæli svona á næstu dögum og fær hún þar af leiðandi afmæliskveðju frá mér. Til hamingju með daginn.

Svo á öðlingurinn hann Jón Frímann hinn fagri afmæli í dag 6 júlí. Til hamingju kúturinn minn

Og eitt enn….

Það er stranglega bannað að svína fyrir mótorhjól ok.

Smellið á myndina til að stækka hana

Þangað til næst….

Duran Duran voru snilld
Posted on July 1st, 2005 at 8:29 am by tommi

Já, það fór svo að kallinn fékk að fara á Duran Duran á meðan konan beið heima og gætti bús og barna. Ég og Ellen fórum uppeftir og hittum Magga, Dagný og Soffa í höllinni. Dæmið byrjaði þegar Laufin byrjuðu að hita upp fyrir goðin. Þeir voru nú með eitthvað svona coldplay, muse eitthvað jerí jerí, sem betur fer spiluðu þeir nú bara stutt. Það var eins og Soffi sagði… eina skiptið sem er klappað það er þegar þeir minnast á hljómsveitina sem kemur á eftir þeim.
Svo líður tíminn og það er aðeins farið að þrengjast upp við sviðið af misgáfulega útlítandi fólki með túberað hár og ég veit ekki hvað og hvað, held meira að segja að ég hafi séð eina jussuna í nýþröngu silfur pilsi sem hægt var að spegla sig í. Svo voru nokkrir húmoristar með axlapúða og blásið hár. Vængjagreiðslu og allt. Ég skildi nú glossið eftir heima í þetta skiptið en tók samt eftir því að Nick Rhodes vinur minn hafði tekið sitt með.
Svo stigu gömlu jálkarnir á svið og virkuðu í fínu formi. Byrjuðu á einhverju af nýrri lögunum sínum sem maður svona kannaðist við en kveikti ekki alveg á. Þegar fyrsta lagið er búið kemur Símon le Bon og segir…. Are you hungry??? Þá vissi maður nú alveg hvað var að fara að gerast. Hungry like the wolf byrjaði að hljóma og allt ætlaði að tryllast. Svo komu Planet Earth, Union of the snake og öll þessi gömlu góðu lög. Maður var eins og smástelpa þarna þegar þeir spiluðu Save a prayer og A wiew to a kill. Wild Boys var líka töff og svo líka öll uppklöppunarlögin. Reflex, Girls og film og notorious.
Þvílíkt skemmtilegir tónleikar og verð ég nú að þakka henni Ellen fyrir að bjóða mér. Ég skemmti mér konunglega.

Með eitís kveðju…

Þangað til næst…..