Kristján Freyr
Posted on August 31st, 2005 at 12:21 am by tommi

Pabbi hans á nú eitthvað smá í honum líka… eða hvað finnst ykkur?


Smellið til að stækka

Þangað til næst….

Partýið í gær
Posted on August 27th, 2005 at 7:35 pm by tommi

Já partýið í gær var athyglisvert með meiru. Það er ekki á hverjum degi sem maður gengur inní partý og gestgjafinn stendur í rauðum Iron Maiden bol með sleif í hendinni og hrærir í plokkfiskpotti. Jón bauð gestum upp á plokkfisk með kartöflum og var þetta nú bara helvíti gott hjá kallinum. Partýið byrjaði nú með hefðbundnum hætti og mikið spjallað og mikið hlegið. Þetta var fámennt en góðmennt og alveg þræl gaman. Þegar nær dró miðnætti var gestgjafinn orðinn doldið valtur í sessi og virtist missa heyrn með hverri mínútunni sem leið því hann vildi alltaf hafa Maiden í botni þannig að ekki var hægt að ræða saman þarna inni. Ég var feginn þegar við loksins fórum að tygja okkur niður í bæ því mér leist orðið ekkert á ástandið á kappanum. Á leiðinni niður í bæ eru allir í fíling að hlusta á And Justice for all, ég dreif mig að henda öllum út úr bílnum og dreif mig svo heim. Takk fyrir mig Jón Frímann og Vatnsberar.

Þangað til næst….

2 ár
Posted on August 26th, 2005 at 12:36 pm by tommi

Nú er ég búinn að blogga í 2 ár og 1 dag to be precise, á þessum 2 árum hefur ansi margt sniðugt og miður sniðugt drifið á daga Tommans. Tomminn hefur búið á 3 stöðum á þessum 2 árum. Fyrst hjá honum Gaua mínum á Álfhólsveginum, svo hjá Blobba á Hringbrautinni og svo í hjallinum mínum í Blöndubakkanum.
En að sjálfsögðu er það sem stendur uppúr á þessum tíma, þegar Kristján Freyr fæddist þann 20 maí síðastliðin. Yndislegt alveg. Hann er bara ennþá lítill og feitur og rosalega sætur og orðinn 3 mánaða töffari.

En nóg um það. Í tilefni þess að ég er búinn að vera að blogga í 2 ár ákvað myndagalleríið mitt að fríka út. Það er allt í henglum þar og ekkert í réttri röð. En örvæntið ekki því að nýjustu myndirnar eru aftast í albúminu.

Soffi minn kíkir á þetta fljótlega þessi ezka.

Svo er Vatnsberapartý í kvöld hjá Jóni F.

Allir Vatnsberar velkomnir. Hinir geta átt sig.. nei segi sona.

Þangað til næst……

Dóló
Posted on August 20th, 2005 at 11:32 am by tommi

Búinn að henda inn skrilljón myndum. Misgóðar að sjálfsögðu, enda tók Rúna megnið af þeim hehehehehe.

Menningarnótt í kvöld. Veit ekki hvusslags menning það er að skrölta blindfullur um miðbæinn ásamt tug þúsund annara apa slefandi niður á bringu búinn að kúka á sig. Fólk má náttúrulega eiga þetta við sig.

Nú er ég búinn að vera edrú í 2 ár og geri aðrir betur. Það er náttúrulega gríðarlega mikið búið að gerast á þessum 2 árum en þið getið náttúrulega séð það þar sem að ég er búinn að blogga nánast allan tímann. Ég var nefninlega svo séður að byrja á því á svipuðum tíma.

En nóg um það. Ég þarf að vinna adios

Þangað til næst….

Vinnan göfgar manninn
Posted on August 17th, 2005 at 11:50 am by tommi

Úff, byrjaður að vinna aftur eftir yndislegt frí. Frekar erfitt að vakna alltaf kl 7:30 og rífa sig upp á rassgatinu til að hoppa í snöggt steypibað. Er bíllaus í bænum og fer allra minna ferða á hjólinu eða með Jóni F. Sem er barasta ágætt. Nema í gær þegar það var rok og rigning en skítt með það.

Ég og Jón fórum á æfingu í gær í fínasta veðri. Eftir æfinguna leigði ég út herbergið niðri og svo kom Jón í heimsókn með súkkulaði og Black Books á DVD, mjög fínt og rjómantískt hjá okkur.

Rúna kemur vonandi á fimmtudaginn til mín. Þetta er ekkert sniðugt að vera svona aleinn og yfirgefinn endalaust. Enda held ég að það sé kviknað líf í niðufallinu á eldhúsvaskinum, betra að vaska upp áður en frúin kemur.

Þangað til næst…..

Kominn heim
Posted on August 14th, 2005 at 5:06 am by tommi

Jæja þá er maður mættur aftur fyrir framan skjáinn eftir viku útlegð lengst inní óbyggðum norðurlands. Ég, Rúna og Kristján Freyr vorum nefninlega í sumarbústað innst inní Bárðardal. Það var voðalega notalegt en ekkert símasamband og að sjálfsögðu engin tölva. Myndir af þessu öllusaman koma þegar Rúna mín kemur til byggða en hún ætlar að vera eitthvað lengur þarna í sveitinni.

Ég var að renna í hlað á Blöndubakkanum nú rétt fyrir fjögur á sunnudagsmorgni. Ætlaði nefninlega að vera sniðugur og keyra um nóttina til að fá frið fyrir löggunni. Gáfaður Tommi eða hittó…. Ég var nefninlega ekki búinn að keyra nema í svona 25 mínútur þegar ég er tekinn af löggunni. Mældur á 109 km/h. Hefði getað verið verra en fyrsta sekt sumarsins staðreynd.
Svo eru snillingarnir í vegagerðinni búnir að leggja nýtt slitlag á hinum ýmsu stöðum en eru greinilega ekkert að spá í að setja stikur eða mála línur á veginn. Frekar óþægilegt þegar maður er að keyra í myrkri, tala nú ekki um þegar það er rigning líka og gáfaður mótorhjólamaður er með dökkt gler líka… hnusss. En maður komst nú samt heill á húfi heim eftir þessa ferð þó mér sé frekar kallt ennþá og eistun á mér eru ennþá uppí nafla. Þetta hlýtur að lagast.

Þangað til næst….

Nafnið
Posted on August 7th, 2005 at 8:51 pm by tommi

Sonur okkar Rúnu er kominn með nafn. Hann heitir Kristján Freyr Tómasson í höfuðið á afa sínum.


Kristján Freyr á góðri stund

Þangað til næst…..

Figo
Posted on August 5th, 2005 at 3:40 pm by tommi

Já þetta er nú bara sæmilegt. Kaupum öll rejectin frá Real… Inter verða öflugir í vetur.

Þangað til næst…..

Metró
Posted on August 4th, 2005 at 11:44 pm by tommi

Já nú er maður orðinn nokkuð metró á því bara ala Jón Frímann. Rúna fór með mig í bæinn og lét mig kaupa bleika skyrtu fyrir skírnina. Ég verð víst að klæðast þessu fyrir allra augum eins og undirgefnum manni sæmir. Auðunn félagi minn úr boltanum prangaði þessu inná okkur. Reyndar held ég að þetta hafi nú verið hinn sæmilegasti díll þar sem að þetta var á 50% afslætti. En nú verður kallinn nett bleikur á því með bleikt bindi í stíl…. Jesús minn.

Þangað til næst….