Hungurverkfall?
Posted on February 25th, 2006 at 2:29 pm by tommi

Þar sem að ég sit hérna í vinnunni og hef ekkert að gera fór ég allt í einu að hugsa um offitu öryrkjan sem var í hungurverkfalli fyrir jól en grenntist ekki neitt… Hvað ætli hafi orðið um hana? Allt í einu fór voðalega lítið fyrir þessu. Ætli hún sé dauð??? Efast um það þar sem að hún leit alveg eins út eftir 68 daga hungurverkfall eins og hún gerði áður en hún hætti að næra sig. Líklega hefur hún verið duglega við að læðast í ískápinn þegar enginn sá til hmmmm. Meiri vitleysan. Spurning um að hringja í DV og heimta 5000 kall fyrir skúbbið hehehehe.


Hérna er svo mynd af Sonju eftir 94 daga hungurverkfall

Þangað til næst…..

Sjíbabbalúla sjísmæbeibe
Posted on February 23rd, 2006 at 9:57 am by tommi

Ég gerði svolítið ljótt af mér…..

Ég er með bullandi samviskubit yfir þessu….

Veit ekki hvað ég á að gera….

Mér líður illa þegar ég horfi á barnið mitt…

Nú eru eflaust margir farnir að spuglera hvað í andskotanum ég gerði af mér?
Jú málið er að ég tók litla sæta barnið mitt og rakaði allt hárið af honum :(
Nú lítur hann út eins og gyðingur í fangabúðum. Aumingja litli kallinn minn. En þetta venst. Ég set inn myndir af þessu í kvöld.

Fyrir og eftir

Þangað til næst….

Silvía Nótt
Posted on February 18th, 2006 at 11:09 pm by tommi

Já ég er ánægður með framlag Íslands í Auravisjón. Þessi keppni er hvort eð er algjört krapp og kominn tími til að hrista aðeins upp í þessu.

Vatnsberarnir voru að keppa á Ragnarsmótinu í Reykjaneshöllinni í dag, gerðu fína för og komu heim með brons pening. Fyrstu medalíurnar sem liðið vinnur.

Þetta var hörku gaman. Við byrjuðum reyndar á að tapa fyrsta leiknum 4-0 en það var gegn liðinu sem endaði á að vinna mótið…. Keflavík Utd. Svo unnum við næstu 2 leiki… Unnum Geirfuglana 2-1 þar sem að Batti og Valur settu mörkin og svo unnum við baráttusigur á Huginn sem var nokkuð sterkt lið. Þar gerð Valur sér lítið fyrir og skoraði þrennu og þar af eitt með bumbunni. Þar með lentum við í 2 sæti í riðlinum og spiluðum um 3 sætið við Kóngana. Við lentum 2-0 undir eftir 3 mínútur og ekki var nú útlitið gott. En með gríðarlegri baráttu náðum við að setja 3 mörk og komast yfir. En því miður fyrir okkur jöfnuðu Kóngarnir þegar hálf mínúta var eftir af leiknum. Þá var gripið til vítaspyrnukeppni… 3 víti á lið. Kóngarnir skoruðu úr sinni fyrstu spyrnu. Svo steig undiritaður upp og skoraði úr okkar fyrstu spyrnu. Þar næst tók Dabbi Wium sig til og varði spyrnu Kóngana. Þá steig Karvel upp og dúndraði í slána… DOH. Kóngarnir skoruðu aftur úr víti og Valur jafnaði úr sinni spyrnu. Þá var það bráðabani. Kóngar skora…. Haukur jafnar, Kóngar skora, Halli jafnar, Dabbi ver spyrnu kóngana og Batti tryggir okkur bronsið. Sniiillld og mjög gaman.

Þið sem nenntuð að lesa þetta… sorry fyrir fótboltasöguna en það er ekki svo oft sem að liðið mitt vinnur til verðlauna þannig að ég er í hátíðarskapi í dag….. fyrir utan helvítis Man Utd að tapa fyrir LFC og enn einn miðjumaðurinn frá… En það er önnur saga.

Þangað til næst…..

Öskudagur
Posted on February 15th, 2006 at 2:38 pm by tommi

Ég bara finn mig knúinn til að stela þessari grein af baggalúti:

Hvað er nú orðið um öskudaginn? Þennan skemmtilega dag þegar börn flykkjast í bæinn með heimasaumaða öskupoka og handbeygða títuprjóna og laumast til að næla þeim í grunlausa vegfarendur. Hver fjandinn varð um þennan dag? Hvar eru allir öskupokarnir? Hvar er spennan við að læðast á eftir kápuklæddri bomsuskæddri kellingu og hengja á hana öskupoka sem var haganlega saumaður með aðstoð frá mömmu eða ömmu?

Ég skal bara segja ykkur það: þetta er allt saman fokið út í veður og vind. Og hvað tók við? Botnlaus andskotans græðgi, sætindabetl og nammisníkjur. Svei því öllu! Og svei þessum viðurstyggilegu, demónísku morðingjabúningum sem verslunarmenn kaupa fyrir slikk á amerískum hrekkjavökuútsölum og pranga inn á saklaus börn ekki bara einu sinni, heldur tvisvar á ári, því auðvitað þarf líka að halda upp á hátíð andsetinna graskera.

Eru þetta gildin sem við viljum innræta börnunum okkar? Í alvöru? Að betla sælgæti úti á götu blóðug upp að öxlum. Vopnuð hnífum. Með hauskúpugrímur. Frekar en að leggja stund á hannyrðir heimafyrir í faðmi fjölskyldunnar og sprella dulítið í kápuklæddum bomsukellingum einu sinni á ári?

Greinilega. Asnar!

Ég er svo hjartanlega sammála þessu að það hálfa væri nóg.

Þangað til næst…..

Slump
Posted on February 13th, 2006 at 10:06 am by tommi

Kort í Hreyfingu eða ekki kort í Hreyfingu… Það er spurningin.
Dabbi frændi á kort í hreyfingu og ég hef kíkt með honum í spinning amk tvisvar. Þetta er jú fínt þannig að nú er spurningin hvort að maður eigi að splæsa í eitt kvikindi. Ef ég færi í dag og keypti kort þá væri ég tilneyddur til að fara með Dabba í spinning í fyrramálið kl 06:00… það hljómar alveg nógu skerí fyrir mig. En nú er málið að ég er ennþá hálf slappur, með einhvern ljótan hósta og allt í volli. Ég er nokkuð viss um að ef ég færi í spinning í fyrramálið þá yrði það síðasti spinning tíminn sem ég myndi fara í, í þessu lífi. Það yrði mitt síðasta. Enda er ég gjörsamlega úr öllu formi eftir þessa bévítans flensu. Ég þarf aðeins að melta þetta betur.

Þangað til næst…..

Snörl
Posted on February 10th, 2006 at 3:59 pm by tommi

Það er ekkert skemmtilegra en að vera veikur í vinnunni. Tíminn er svo yndislega lengi að líða og allt er svo frábært. Svo er líka svo gaman að hugsa til þess að ég þarf að vinna á morgun líka…. Fokking frábært.

Þangað til næst…..

Veikindaskúbb
Posted on February 9th, 2006 at 5:46 pm by tommi

Það er helst í fréttum í dag að Tommi Jobba er búinn að liggja haugmyglaður í íbúðinni sinni með hita, beinverki og mikinn hósta ofaná á allt saman, bryðjandi íbúfen og drekkandi sólhattssull meððí. Ekki er ástandið gott á þeim bænum en þetta fer nú skánandi, gæti jafnvel risið úr rekkju á morgun ef ástandið heldur áfram að skána.

Ég held að ég sé búinn að skoða allt á netinu…. Þá meina ég allt. Þetta er ófremdar ástand.

Í spilaranum:

Hells Bells - AC/DC
Mother - Danzig
I’ll stick around - Foo Fighters
Infinite Dreams - Iron Maiden
Love Gun - Kiss
Fade to Black - Metallica
Citizen Erased - Muse
Hollow - Pantera

Þangað til næst….

Country road, take me home
Posted on February 6th, 2006 at 10:58 pm by tommi

Bújaka

Heyrst hefur….

að bassafantinum í Kvaðratrót hafi verið skipt út fyrir yngra módel.


nýi og gamli… hvor ætli sé betri

að Rúna Jobba sé sólgin í hor.


Hérna er kella að ná sér í væna slummu, enda af nógu að taka

að Maggi Jobba sé búinn að stofna fyrirtækið nágrannavaktin sem sérhæfir sig í vöktun á húsi Daltónana.


Eins og sést þá er Maggi búinn að fjárfesta í hátækni vörum fyrir vöktunina

að næsti Maggi Kjartans sé mættur á svæðið og byrjaður að glamra.


Kristján tók lagið allt á floti allstaðar fyrir Magga frænda

að nýtt boyband sé sprottið upp á yfirborðið öllum að óvörum.


Drengirnir sérhæfa sig í Village People cover slögurum og eru hér að undirbúa flutning á YMCA með öllu tilheyrandi

að Halli Fríðu Lein hafi á dögunum gleymt sér í counterstrike og hlaupið með headsettið um bæinn og plaffað eldriborgara með túttubyssu.


Halli var á endanum yfirbugaður af Gísla löggu

að ungfrú Gaulverjahreppur hafi heiðrað Grundarfjörð með nærveru sinni um síðast liðna helgi.


Hún ungfrú Hansína vekur ávallt gríðarlega lukku hvar sem hún kemur

að Viggi Runna sé orðinn ansi langt leiddur í saltpillu áti.


Búið er að panta pláss á Betty Ford fyrir kallinn enda er hann ansi djúpt sokkinn… Kominn í 3 pakka á dag

að Ninni Dittu sé orðinn afspyrnu slakur scrabble leiknum fræga.


Ninni er hér að etja kappi við leikskólabörn og rembist við að setja saman þriggjastafa orð úr stöfunum APIHÚSZ…. En hrakfarir Ninna í leiknum góða má rekja til of mikillar neyslu á sokkasafa

að Steini Jobba hafi náð að klára allt skyrið sitt fyrir mömmu sína.


Steini sýnir hér stoltur að allt skyrið sé búið eða “abbú” eins og hann orðaði það svo skemmtilega fyrir viðstadda

að Dúettinn Maggi og Ninni gangi nú í hús og syngi fyrir skitinn fimmhundruð kall.


Hérna taka félagarnir atti katti nóa fyrir Gísla göngutúr sem borgaði með 2 skyrtutölum og túkalli

að Viggi hafi keypt sér gítar og sótt um stöðu gítarleikara í Írafár en orðið frekar súr þegar hann frétti að það var nú þegar búið að ráða einn Vigga í írafár…. eða þannig.


Viggi varð bara að taka trúbadorinn á þetta í staðinn með vafasömum árangri

að Gunni í sjoppunni sé með tilraunastarfsemi til að laða kúnnana að.


Páll Óskar og Skjöldur Eyfjörð hafa sést ítrekað á Esso í kjölfarið á tilraunum Gunna

Ég veit að það er ekki föstudagur í dag but what the heck.

Þangað til næst…..

Sólarsamba um hávetur
Posted on February 1st, 2006 at 11:27 pm by tommi

Það er eitthvað bogið við það þegar maður getur þeyst um á mótorhjóli 1 febrúar. En engu að síður er það staðreynd. Ég kíkti til Massa Ívars eftir vinnu og náði í fákinn. Var reyndar pínu bras á mér því að rafgeymirinn var alveg galtómur. En eftir svona c.a. hálftíma fiff var fákurinn klár og lítið annað að gera en að smella sér í gallann góða. Unaðsleg tilfinning að smeygja hjálminum á sig og bruna af stað. En þetta á nú eflaust ekki eftir að endast lengi. Ég ætla þó að njóta þess á meðan ég get, svo hendi ég hjólinu inn til Marvins þegar að það kólnar aftur.

En nóg um það. Rúna litla er að fara í aðgerð á föstudaginn. Ég og Kristján Freyr verðum bara að dunda okkur saman á meðan það er verið að krukka í ástinni minni. Vonandi gengur þetta nú allt saman vel enda hef ég enga trú á öðru.

Svo var ég hjá lækni í dag út af vansköpuðu hendinni á mér og þar var mér tjáð að ég þyrfti að fara í aðgerð til að láta laga þetta. Það þarf að saga í úlnliðinn og setja bein af mjöðminni á mér ofan í til að rétta hann við. Hann snýr víst 45 gráður í vitlausa átt. Ég fékk nú að ráða og ég fer í þessa aðgerð í haust. Læknirinn ætlaði að senda mig í þetta í þessum eða næsta mánuði en það myndi þýða eftirfarandi…. Ekkert mótorhjól í sumar, enginn fótbolti í sumar og ekkert bassaspil í sumar. Þannig að ég ætla að nýta sumarið og skella mér svo í þessa aðgerð í haust.

Man Ure enn að gera gloríur og voru að tapa á móti Blackburn. Ég er nokkuð viss um að það sé út af því að ég rakaði mig eftir síðasta leik. Here we go again eins og sagði í dægurlagatextanum. Á næsta winning streak (hvenær sem það verður) verður ekkert átt við skeggið í hvaða mynd sem er… Hvort sem það er rakstur eða skeggsöfnun. Status quo skal það vera heillin.

Þangað til næst…..