Posted on April 29th, 2006 at 3:13 pm by tommi
Rétt í þessu voru Gilbert og Freyja að eignast litla prinsessu, 12.5 merkur og 48.5 cm. Gilli, Freyja og Alexander, Hjartanlega til hamingju frá okkur í Blöndubakkanum.
Þangað til næst….
Rétt í þessu voru Gilbert og Freyja að eignast litla prinsessu, 12.5 merkur og 48.5 cm. Gilli, Freyja og Alexander, Hjartanlega til hamingju frá okkur í Blöndubakkanum.
Þangað til næst….
Til hamingju Chelsea og þið hinir tækifærissinnar sem haldið með þessu peninga skíta fokkings liði.
Þangað til næst….
Splæsti í ný dekk undir hjólhauginn í dag. Bæði að aftan og framan. Kostaði mig nokkra þússara en bæði dekkin voru orðin frekar tæp. Annars er það bara fína í kína.
Heyrst hefur….
að glaumgosinn hann Viggio sé afar iðinn við kolann þegar kemur að dömuhösstli

Viggio er hérna kominn í feitt enn eina ferðina
að Kári Gunn hafi unnið keppnina “saklausasti svipurinn” með yfirburðum.
að tvíbbarnir Tott og Knoll hafi sést rall hálfir á Rabbabarnum á Patreksfirði

Tott var búinn að fá sér 3 kippum meira en Knoll
að Maggi Jobba hafi látið drauminn rætast og pantað sér Suzuki 1000 af veraldarvefnum

Myndarhjól sem drengurinn valdi sér enda löngum talinn smekk maður hann Magnús
að Ninni Dittu sé orðinn forfallinn lúdó spilari á netinu.

Ninni er hérna kominn í aðra umferð með grænum
að Ninni hafi líka á dögunum farið og reynsluekið draumabílnum sínum

Ninni er hérna bakvið stýrið á Ford Cortinu árg 74 sæll og glaður
að Rúna Jobba hafi fengið óvæntan verk í ristlinn og þurft að losa eina bólu í margmenni.

Þessi óborganlega mynd náðist akkúrat þegar bólan er að þrýstast út úr þarminum
að Þegar Rúna vill ekki leyfa það, þarf Tommi litli að leita á önnur mið.

Maggi er nú ekkert allt of óánægður með þetta
að Tommi litli hafi ekki burstað tennurnar síðan 1982

Það er búið að fjárfesta í forláta Reach vírbursta handa kallinum
Þangað til næst….
Verð að kaupa nýtt helvítis afturdekk á hjólið hjá mér. Ég ætlaði að láta þetta duga fram yfir mánaðarmót en þetta er farið að verða ískyggilegt. Ekki sniðugt að rúnta á þessu svona í bleytunni. Svo eru það olíuskipti líka. Sjæse, spurning hvernig maður á að fjármagna þessi ósköp… any ideas?
Þangað til næst….
Var þokkalega búinn að ákveða að fara á hjólinu í vinnuna í morgun en neeeeeeiiiii, auðvitað var þá náttlega búið að fokking snjóa í nótt þannig að það var fokking helvítis skafl á brakinu. Púllaði bara strætó á þetta.
Þangað til næst….
2/3 af mótorhjólaklúbbnum Skríplar fóru í vettvangsferð í gær. Við Maggi fórum í Bauluna að sækja rafgeymi í hjólið mitt sem að hann Kibbi var svo elskulegur að útvega mér. Við byrjuðum á að fá start á hjólið mitt hjá Dagný og svo var brunað af stað uppí Borgarfjörð. Reyndar voru Kibbi og Sigrún búin að loka Baulunni þegar við komum en það skipti engu. Þau buðu okkur bara í kaffi og súkkulaði heima hjá sér þar sem að við stoppuðum og hittum nokkur ættmenni mín. Þetta var mjög fínt. Ég tók c.a 4 myndir en litlu frænkur mínar sem fengu myndavélina lánaða sáu um að taka restina. Þá er bara að bíða eftir að þriðji Skrípillinn hann Viggi komi af sjónum og fullkomni þrenninguna.
Fleiri myndir inná myndasíðunni.
Í spilaranum:
Still loving you - Scorpions
Lonely day - System of a down
Talk - Coldplay
Barfly - Jeff Who
Unattended - Daysleeper
þangað til næst…..
Þetta er nú farið að vera svolítið pirrandi ástand. Maður er búinn að næla sér í enn eina helvítis flensuna. Ligg hérna uppí rúmi eins og skotinn selur með krumpaðann hortissjú við hliðina á sér.
Ég er á því að þetta sé út af því að ég lét bólusetja mig í haust. Jááááá… sniðugt, best að vera forsjáll og fá ekki neina flensu… En neeeeeiiiii, með því að láta sprauta þessu bannsetta eitri í handlegginn á mér, hef ég nælt í hverja pestina á fætur annari.
Við fórum vestur um páskana, ég og frúin, en guttinn var kominn þangað nokkrum dögum áður. Þar höfðu dömurnar á kaffi 59 verið duglegar að troða í pjakkinn þannig að á sá. Ég er ekki frá því að hann hafi bætt á sig heilu kg eftir þessa för. Rúna er búin að liggja veik alla páskana og svo ég þegar ég kem heim. Gjörsamlega óþolandi og mest pirrandi helvítis djöfulsins bananaástand sem er hérna. Það eru allavena hreinar línur að ég ætla ALDREI aftur í djöfulsins bólusetningu. Þetta bíður bara upp á flensufaraldur.
Það fer einhverjum sögum af þessu fylleríi mínu um liðna helgi. Var að heyra það núna að ég hafi verið stoppaður af í skotkeppni… sem er ekki satt… allavena ekki alveg satt. Rúna hnussaði réttilega á mig þegar ég ætlaði að gúlla í mig skoti nr 2… sem betur fer. En þetta var barasta fínt og ég er ekkert aðframkominn af brennivínsþorsta. Gæti eflaust hætt að drekka aftur í tvö og hálft ár ef ég kæri mig um. En þetta er fínt svona, einn dag í einu eins og máltækið segir.
Í gær pantaði ég mér ferð til Mallorca með Rúnu. Hún er að fara í einhverja útskriftarferð með vinkonum sínum og ég ákvað bara að skella mér með. Förum 17 maí og verðum væntanlega í eina viku… kannski tvær, kemur í ljós seinna.
En nóg í bili, ég ætla að halda áfram að snýta mér og safna horpappír.
Þangað til næst….
Í gær fékk ég mér bjór í fyrsta skipti síðan 2003, það var gaman, en í dag er ég með hausverk í fyrsta skipti síðan 2003… ekki eins gaman
Þangað til næst….
Ég er farinn vestur í páskafrí…
bless
Þangað til næst….
Sit hérna í vinnunni, lítið að gera eins og vanalega á þessum tíma á laugardögum, uppbelgdur af pizzu frá dominos og coke light. Held ég þurfi að létta á mér fyrir leikinn á eftir. Vatnsberar vs Kuhmo Rovers í Safamýrinni kl 17:30. Nokkrir nýir og tilvonandi Vatnsberar mæta. Spurning hvernig þetta fer, margir af fastamönnunum meiddir eða fjarverandi.
Hanna systir er í heimsókn, gott að fá barnapíu á meðan ég er að keppa, Rúna er nebblega að fara í eitthvað bévítans hólívúdd partý hjá Ásdísi Marilyn Monroe, Rúna ætlar að fara sem Kleópatra og var í allt gærkvöld að dreifa nálum um allt gólf og föndra sér búning í leiðinni.
Endalaust djamm á stelpunni alltaf hreint. En við feðgarnir reddum þessu eins og svo oft áður.
Þangað til næst….