Ramón
Posted on May 29th, 2006 at 11:34 am by tommi
Í gaer gerdum vid Rúna svolítid skemmtilegt. Thannig er ad thad vinnur alveg rosalega skemmtilegur bartjónn hérna á hótelinu ad nafni Ramon, hann er fyrrverandi boxari, frekar sver og dýrkar Íslendinga. “Heyrdu” er ord sem hann notar óspart og “verí naes” “Takk fyrir” osfr. Í gaer fór Ramón med okkur á djammid. Hann var mikid búinn ad vera ad monta sig yfir Ferrarinum sínum sem reyndist svo vera minnsti smábíll sem ég hef séd. Upp í hraeid stigum vid Rúna og brunudum á vit aevintýranna med Ramon. Thetta var med skemmtilegustu kvoldunum sem vid hofum upplifad hérna, enda er Ramon algjor snillingur. Endudum á pobb sem vinir hans reka thar sem óspart var daelt í okkur áfengi án thess ad turfa ad borga krónu, Mikid hlegid og mikid gaman.
En núna eru 2 dagar í heimkomu, okkur er farid ad hlakka til, enda líst okkur ekkert á kommentid fyrir nedan á kókómjólkur pelann kl 24, takk Hrund,
En sjáumst fljótlega… “HEYRDU”
Thangad til naest….
Á Mallorca
Posted on May 27th, 2006 at 5:27 pm by tommi
Úff hvad tad er heitt hérna, búin ad vera einhver hitabylgja í gangi. Sumir gedsjúklingarnir enntá í sólbadi og klukkan ad verda hálf átta hérna.
Annars er tetta búid ad vera rosalega fínt fyrir utan ad tad rigndi einn dag, tá datt hitinn nidur í 15 stig… gott ad hafa peysu med sér tá hehehe.
Svo rakst ég á staersta kakkalakka sem ég hef á aevi minni séd… Oj bara, ég veit ekki hvor var hraeddari, ég eda kakkalakkinn, enda hlupum vid í sitthvora áttina.
Tad er ekki laust vid ad okkur Rúnu hlakki rosalega til ad koma heim, enda soknum vid Kristjáns alveg rosalega mikid, gott ad hafa netid hérna á hótelinu tar sem ad madur getur rennt í gegnum myndirnar af honum.
Hlakka til ad sjá ykkur oll eftir 4 daga… sólarkvedja, Tommi og Rúna
Thangad til naest….
Mallorca
Posted on May 16th, 2006 at 3:39 pm by tommi
Um þetta leyti á morgun verð ég rétt við það að lenda í Palma sem er á Mallorca. Við Rúna verðum þar í 2 vikur í afslöppun og álíka sukki. Þetta verður eflaust frekar ljúft en við komum aftur þann 31 maí.
Kristján Freyr er komin til Grundarfjarðar þar sem hann verður hjá ömmum sínum og öfum í góðu yfirlæti, enda er stjanað við hann úr öllum áttum. Það er ekki laust við að maður sé farinn að sakna hans strax, ég veit ekki hvernig við verðum eftir 2 vikur… uuuussss. En þá hefur maður allavena eitthvað til að hlakka til þegar maður kemur aftur á klakann.

Sætastur
Efast um að maður nenni að finna tölvu með nettengingu á Mallorca en hver veit, aldrei að vita nema að maður láti heyra í sér á meðan við erum úti en ekki gera of miklar væntingar 
Þangað til næst….. (hvenær sem það nú verður.)
Inter
Posted on May 13th, 2006 at 11:49 am by tommi
Inter ítalskur bikarmeistari 2006



FORZA INTER
Þangað til næst….
Grundarfjörður
Posted on May 9th, 2006 at 2:32 pm by tommi
Ég og sonur minn erum núna staddir í góða veðrinu á Grundarfirði. Ekkert nema chill í gangi. Er semsagt kominn í feðraorlof og er að klára þessar 5 vikur sem ég á eftir. Svo erum við Rúna náttlega að fara til Mallorca eftir 8 daga, það verður sweet. Verst að geta ekki tekið hjólið með mér hrmpf. Ætli Ninni fái ekki að njóta góðs af því… sjáum til. Það var hjólað mikið um helgina. Fórum á Rafta sýninguna á laugardaginn. Búinn að setja inn slatta af myndum. Bæði frá sýningunni og svo djamminu eftir sýninguna. Það var gaman. En nú ætla ég að halda áfram að gera ekki neitt….
Þangað til næst….
jahá
Posted on May 5th, 2006 at 2:18 pm by tommi
Take the quiz:
Which Dead Rock Star Are You?

Kurt Cobain
You are Kurt Cobain! You’re grundgy, twisted and very talented. You have a certain charm and individuality that sets you a part from many. You are beautiful! Oh, he died in 1994 from a gun shot wound to the mouth. Suicide.
Quizzes by myYearbook.com — the World’s Biggest Yearbook!
Þangað til næst….
Slóði
Posted on May 2nd, 2006 at 11:04 am by tommi
Nú er svo komið að ég er búinn að gera kerlinguna alveg snælduvitlausa. Ekki þykir það nú vænlegt til árangurs þannig að eitthvað þarf maður að gera til að græja þetta.
Þannig er mál með vexti að nú er vorið komið í sinni fínustu mynd með tilheyrandi fótboltaveseni, mótorhjólaveseni sem bætist ofaná mitt venjulega daglega vesen… þ.e. tölvuvesen og vinnuvesen. Konunni minni sætu finnst of mikill tími fara í þessi svokölluðu áhugamál mín og of lítill tími fara í að sinna konu, barni og búi. T.d. um helgina fór ég á mótorhjól á föstudagskvöldið, vinna á laugardeginum og mótorhjól eftir vinnu, sunnudagur var hvíldardagur og 1 maí var hópkeyrsla sniglanna og ekki mátti maður missa af því.. Sjálfur snigill nr 1187 eða hvað það var nú… þannig að lítill sem enginn tími gafst fyrir konuna að líta í bók… og hún sem er á fullu í prófum þessa dagana. Eitthvað þarf maður að taka sig á núna og gefa henni allan þann tíma sem hún þarf, það þýðir eftirfarandi fyrir mig:
Ekkert FM
Lítið sem ekkert mótorhjól
Lítill sem enginn fótbolti
og mjög svo takmarkaður tími í tölvunni.
Þetta þarf að vera svona næstu 2 vikurnar og svo förum við til Mallorca.
Þannig að Rúna mín…. Ég skal taka mig á.
Þangað til næst…..