Eitt mark á kallinn
Posted on June 27th, 2006 at 2:15 pm by tommi
Vatnsberarnir voru að tapa fyrir Mannsa (stytting á mannaskít) 3-5 en eini ljósi punkturinn við það var að kallinn sjálfur, yours truly, sjöan, Tomminn, formaðurinn, hetjan og snillingurinn…. ÉG, skoraði og kom okkur í 3-2, en svo þurfti maður að fara útaf með flökurleika og harðsperrur og því fór sem fór.
Allir að skoða… —ÞETTA—
Þangað til næst…..
Fyrsti vinnudagurinn í laaaaangan tíma
Posted on June 21st, 2006 at 11:35 pm by tommi
Mætti eldsprækur í vinnuna í morgun… NOT. Átti frekar erfitt með að drattast á lappir en það tókst að lokum, Ingi farinn í frí, endalaus sól framundan, loksins þegar ég er búinn í fríi hættir að rigna… týpískt. Svo eru einhverjar brjálaðar breytingar framundan hjá búðinni og maður þarf að vinna frameftir og allt. Það hefur ekki gerst síðan ég veit ekki hvenær… skelfilegt.
Svo er maður bara einn í kotinu, sakna nú hennar Rúnu minnar og litla kallsins rosalega mikið, en ég hitti þau nú eftir 2 daga ef Guð lofar.
Eftir HM í kvöld fór ég á eitthvað stöðvarflakk og datt inn á Opruh… ég veit, ég veit, haldiði bara það sem þið viljið, en í þessum þætti af Opruh var Djeims nokkur Blönt að troða upp. Lítur út eins og hippi en sá kann að semja lögin. Kaninn er rétt að fatta kvikindið núna og hann mætti til Opruh og tók 2 slagara. Seinna lagið sem hann tók var “Good bye my lover” og ég hef sjaldan séð annað eins. Þið megið kalla mig hvað sem þið viljið en mikið djöfulli var þetta flott hjá honum. Ég táraðist við að horfa á þetta. Bara sad svipurinn á honum þegar hann var að flytja lagið, það var bara alveg eins og hann væri að syngja þetta í jarðarförinni hjá konu sinni til 48 ára. Sorglega ógeðslega flott.
James Blunt er væminn en töff… á sinn hátt.
Svona getur einveran farið með mann, sitjandi einn heima að horfa á Opruh og hlusta á James Blunt.
En best að tussast í háttinn, langur vinnudagur framundan.
Góða nótt…
Þangað til næst…..
Kominn í bæinn
Posted on June 19th, 2006 at 4:43 pm by tommi
Þá er maður kominn til Reykjavíkur loksins. Rúna og Kristján eru ennþá fyrir norðan og verða þar væntanlega þangað til á sunnudaginn. Ég fer aftur norður á föstudaginn á ættarmót í Bárðardalnum.
Mæti til vinnu aftur eftir langt frí á miðvikudaginn. Spurning um að fara að rífa sig upp fyrr á morgnana.
Helvítis hjólið verður væntanlega ekki tilbúið fyrr en eftir helgi, ég sem var búinn að plana að fara norður á því buuuutt nooooooo helvítis crapp.
Þangað til næst…
myndasíðan
Posted on June 13th, 2006 at 12:18 pm by tommi
Myndasíðan er komin upp og ég er búinn að henda inn öllum myndunum frá Mallorca. 10 albúm komin… ja hérna hér.
Þangað til næst….
Myndir
Posted on June 8th, 2006 at 12:15 am by tommi
Myndasíðan er búin að vera niðri í einhvern tíma en Soffi kippir þessu í liðinn um leið og hann getur, ég er búinn að henda inn einu albúmi held ég, reyndar datt myndasíðan út í miðjum klíðum en ég held að þetta ætti að stickast inn. Eitt albúm af tíu frá mallorca, þetta verður maus.
Ég er núna í bænum að vesenast. Fór bæði með bílinn í tjónaskoðun sem og hjólið mitt. Rúna náði að láta keyra á sig daginn áður en við fórum út, hún var að sjálfsögðu í 100% rétti þessi elska og það þýðir peningur fyrir okkur, ekki veitir af á þessum síðustu og verstu visa tímum.
En það er annað mál með hjólið. Ninni bróðir var með það í láni á meðan við vorum úti og þegar það voru 10 mín í að hann myndi skila því til mín náði hann að keyra á áburðardreifara. Ninni slapp alveg ómeiddur sem betur fer en hjólið laskaðist talsvert. Þetta var bara bölvuð óheppni. Ninni er að taka frammúr traktor sem keyrir á 20 km/h þegar traktorinn beygir skyndilega inn afleggjara sem var þarna án þess að taka stefniljós, Ninnsterinn nær að negla niður af sinni alkunnu snilld og var á c.a. 5-10 km/h þegar hann dunkar á áburðardreifarann sem hékk aftan í traktornum. Það var bara plastið á hjólinu sem laskaðist og brotnaði, hjólið er núna hjá Dóra í mati og svo kemur í ljós hvað verður. Á svona stundum er sniðugt að vera með dýra dótið sitt í kaskó.
Renndi disknum sem ég keypti á tónlist.is með Jeff Who? í gegnum spilarann og þvílík snilld. Djö hvað þeir eru seigir. Mæli með þeim og stefni pottþétt á að sjá þá spila einhverstaðar í sumar.
Eníveis, þá erum við Ninni (crash bandicut) að horfa á L Word á skjá einum og viljum ekki láta trufla okkur. Og svo er einn helvítis dagur í HM, damn hvað mig hlakkar til…
Þangað til næst…..
Komin heim
Posted on June 1st, 2006 at 3:43 pm by tommi
Jæja, þá er maður loksins kominn heim í heiðardalinn og rigninguna. Við Rúna fórum beint vestur þar sem tók á móti okkur heljarinnar veisla í tilefni af afmælinu hennar Hrundar, Kristjáns og Rúnu. Svaka fínt. Það var rosalega gaman að hitta prinsinn okkar aftur, hann hefur breyst helling á þessum 2 vikum, farinn að babla miklu meira og labba meira osfr. Svo finnst mér hann hafa þyngst helling líka… hmmm.
Hann var nú hálf dasaður þegar hann var rifinn úr vagninum til að hitta okkur. Tók hann c.a. 20 mínútur að átta sig á að við værum komin heim. En svo var rosalega gaman hjá honum.
Ég er kominn aftur í bæinn en fer væntalega aftur vestur í fyrramálið. Arndís Jenný á að fermast á sunnudaginn og ekki má maður missa af því.
En velkomin heim við, jeeeeiiiiiiii
Þangað til næst….