Moroninho
Posted on April 26th, 2007 at 10:34 pm by tommi

Þetta er bara alltof alltof ógeðslega FYNDIÐ

Þangað til næst….

STAND UP FOR THE CHAMPIONS
Posted on April 25th, 2007 at 10:11 am by tommi

Þangað til næst….

Kóngur og drottning
Posted on April 21st, 2007 at 10:04 pm by tommi

Rúna mín var að keppa í dag á drottningamóti ÍR. ÍRingarnir voru með 2 lið í keppni og var Rúna mín í liði 1 ásamt nokkrum öflugum drottningum. En nóg um það… Svo fór að Rúna var valin Drottning mótsins, enda gerði hún lítið annað en að skora mörk í öllum regnbogans litum. Hún kom heim með forláta kórónu til að sanna mál sitt. Af gefnu tilefni þá hlýt ég að sjálfsögðu að titlast ÍR kóngur ekki satt. Ég er nú búinn að deila bóli með kellu hátt í tíu ár núna og annað væri bara rugl.

Tommi kóngur kveður að sinni

Þangað til næst….

EOS
Posted on April 14th, 2007 at 12:52 am by tommi

Proud owner

Canon EOS 400 D

Já ég er geðveikur og nei ég hef ekki efni á þessu og nei ég kann ekkert á þetta.

Spurning um að skella sér á námskeið í ljósmyndun.

Þangað til næst….

Skitustingur dauðans
Posted on April 12th, 2007 at 10:48 pm by tommi

Um páskana lá öll Jobba ættin með skitu uppí rúmi og kveinaði og kvartaði af afli. Allir nema ég að sjálfsögðu, Kristján Freyr, Rúna, Jobbi, Anna Jobba, Begga og Steini fengu öll vott af skitu með meðfylgjandi daun og verkjum.
Ég taldi bara að þau þyrftu að hækka prótín og járn magn í fæðinu því að ég var stálsleginn alla páskana… Svo líður og bíður og ég fer í bæinn til að vinna og þá gerist það… bara sí sonna, BÚMM
Í gær þurfti ég nánast að hlaupa á klósettið í vinnunni (þið vitið hvað það er óþægilegt að brúka skítelsi á vinnustaðnum) því að náttúran kallaði af lífs og sálar kröftum. Þetta þoldi enga bið og ég þakka mínum sæla bara að hafa náð að setjast á helvítis dolluna í tæka tíð því að það sem fylgdi á eftir hefði allt eins getað endað niður buxnaskálmina hjá mér.
Það skipti engum togum nema að það var eins og það væri verið að losa úr haugsugu niður í klósettið. Þetta var svakalegt. Þessi losun tók c.a. 20 mín með tilheyrandi lykt og svitakasti.
Eftir þennan gjörning sá ég mig knúinn til að staulast heim því að ekki vildi ég eiga á hættu að lenda í þessu aftur, Vera kannski að selja Dimension 520 E í góðum fýling og þurfa svo að hlaupa inná lager og skilja kúnnan eftir á gólfinu klórandi sér í hausnum ó nei takk.
Restin af deginum fór í vítiskvalir heima með óteljandi kamarsferðum. Ég held ég sé kominn niður í 3 rúllur af skeinara á einum og hálfum sólarhring og geri aðrir betur.
Vona að ég geti álpast í vinnuna á morgun á skárra ástandi en ég var í dag…. plíííís ég er orðinn þokkalega þreyttur á að pissa með rassgatinu endalaust.
En nóg af skít í bili.


Man Jú álpuðust til að SLÁTRA Róma með 7 mörkum gegn 1 Dabba frænda til mikilliar gleði. Ég hef held ég bara aldrei orðið vitni að öðru eins… Jú bíddu, einu sinni tapaði ég fótboltaleik með FC Fist 8-2 eftir að hafa verið 2-1 yfir í hálfleik, Það var frekar svekkjandi, Maður sá það svona á svipnum á þessum pastaætum að þeir voru meira til í að vera að vaska upp heima hjá sér heldur en að láta Darren Fletcher skrattast á görninni á sér.

En nóg af skít og rugli í bili…

Þangað til næst….

Páskar?
Posted on April 10th, 2007 at 11:15 am by tommi

Páskarnir voru næs. Fórum vestur, Rúna dró mig uppá jökul á föstudaginn langa þar sem að maður þeyttist um hvítar grundir á snjósleða eða á slöngu.
Reyndar voru allir með pípandi drullu yfir páskana nema undirritaður hehehehe. Svo fékk Kristján Freyr sykursjokk á páskadag af súkkulaðiáti. Hann var hress eftir það. Hann var reyndar ekki svo mjög hress um nóttina þegar hann vaknaði, reis upp og ældi yfir sængina hennar mömmu sinnar.

Nú eru Rúna og Kristján Freyr ennþá í Grundó og ég aleinn í bænum, reyndar er Torfi hérna líka.
Man USA vs Rjóma í kvöld. Eins gott að United skeini sér hressilega fyrir kvöldið því 2 tapleikir í röð er frekar pirrandi ástand.

Þetta er með svalari lögum í öllum heiminum…

Þangað til næst….

Úff
Posted on April 3rd, 2007 at 11:42 pm by tommi

Það er nú búið að vera meiri hasarinn hérna í Blöndubakkanum… Löggubílar á hverju kvöldi og svaka hasar. En það er komið núna, leigjandinn farinn og allt fallið í ljúfa löð væntanlega.

Var að henda inn slatta af myndum á myndasíðuna, misgóðar að sjálfsögðu.

Rúna er að missa sig út af nýju Nintendo Wii tölvunni minni. Hún er að fýla þetta í ræmur, enda er þetta ógeðslega skemmtilegt.

Sjitt hvað það verður ljúft að komast í smá páskafrí. Stefnan er tekin vestur á fimmtudaginn. Við Dabbi frændi þurfum að skreppa með bunka af félagaskiptablöðum fyrir hana Eygló að kvitta á. Þetta er fyrir leikinn mikla í Visa bikarnum þann 11 maí næstkomandi. Þá fyllist Grundarfjarðarvöllur af kaffihúsaliði úr Reykjavík eins og Gæi nokkur Hadda orðaði það svo pent. Þetta kemur í ljós alltsaman og málið bara að hafa gaman að þessu.

Við í Vatnsberunum vorum að fjárfesta í nýju búningasetti fyrir tímabilið og munum vígja það sett 11 maí á Grundarfjarðarvelli ef allt fer eins og það á að fara. Þ.e. ef Grundarfjarðarvöllur verður klár í þetta. Það er ekkert víst að mönnum eins og Jón Frímann og Steina Jobba verði hleypt inná völlinn enda erum við að tala um hálft tonn hvað þá varðar. Spurning hvort okkur hinum fjaðurvigtarmönnunum verði gert að klára dæmið… hehehe.


Nýji og geðveikt svali búningurinn okkar

Hérna kemur svo svalasta lag í heimi enda Dave Grohl með svalari mönnum EVER:

Þangað til næst….