Magnað lag
Posted on July 25th, 2007 at 1:59 am by tommi

Þetta er nýja uppáhalds lagið mitt enda er þetta alveg hreint geðveikt.

Er núna í bænum. Fór á sunnudaginn þar sem að ég var að keppa í gær. Unnum 4-1 þar sem að ég náði skoti í stöng og að klúðra sama dauðafærinu tvisvar… Þ.e. skaut, lét verja, náði frákastinu og skaut boltanum 2 km yfir markið. Kemur bara næst Tommi minn.

Grundarfjarðardagarnir um næstu helgi, svo er það versló. Sumarfríið farið að styttast í annan endan og sumarið líka. Alltof fljótt að líða þetta helvíti. Spurning um að ná í nokkra dráttarbáta og draga þetta blessaða sker aðeins sunnar á hnöttinn svo að maður fengi amk 6 eða 7 mánaða sumar… djö snilld yrði það.

En allir að mæta á Grundarfjarðardaga og áfram MUSE… Við bræður verðum með geysiskemmtilega útvarpsþætti á miðvikudagskvöldið í útvarpi Grundarfjarðar FM 104,7. Sá fyrri verður á milli 20 og 21 og sá síðari á milli 1 og 2 um nóttina. Þar munum við væntanlega bulla einhverja steypu ættaða frá Hofstöðum… eða þannig.

Þangað til næst….

Kominn heim
Posted on July 19th, 2007 at 9:30 am by tommi

Þá er maður lentur á klakanum og þá þarf ekki að spyrja að því… byrjað að rigna hérna eftir stanslausa sól í ég veit ekki hvað marga daga. Maður var hálfpartinn að vonast eftir rigningu því að það kom varla eitt ský á meðan við vorum í hitanum á spáni. Ég vona bara að veðrið verði fallegt á laugardaginn fyrir þau soffa og hrefnu sem ætla að ganga að altarinu.

Er svona að vinna í því að henda inn flestum myndunum. Gengur alveg ágætlega svo sem.

Nú þarf maður bara að koma reglu í hinn daglega gang og þá fer vonandi allt að gerast. Hyggjum á vesturferð í dag einhverntímann… Kemur síðar í ljós.

Þangað til næst….

Heitt heitt heitt
Posted on July 9th, 2007 at 8:45 pm by tommi

Nú erum vid búin ad vera hérna á spáni í heila 5 daga og thetta er alveg svakalegt. Kristján er núna komin med smá sólsting og var med 39 stiga hita í gaerkvoldi og í dag. Sem vard til thess ad undirritadur thurfti ad sleppa tví ad skella sér til afríku. Rúna og Arndís fóru thó en vid fedgar sváfum til hádegis og héldum okkur í loftkaelda herberginu í dag.
Annars er thetta búid ad vera rosalega fínt. Kallinn ordinn pínu sólbrenndur á skallanum. Kristján hefur alveg sloppid vid ad brenna enda alltaf med sólarvorn nr 50+ á sér. Honum finnst alveg aedislegt ad busla í sundlauginni og heimtar ad fá ad fara út um leid og hann vaknar. Sem var pínu erfitt í morgun thví ad hann mátti ekki fara í sólina :(
En thetta er búid ad vera alveg aegilegt chill á okkur. Erum búin ad fara einusinni á strondina á smá stund. Fórum líka í einhvern dýragard thar sem ad ég sá simpansa drulla í hendina á sér og ad mér sýndist éta saurinn… svo er sagt ad vid séum komnir af opum. Ekki einusinni Gaea Hadda dytti thetta í hug.

Thad verdur líklega thétt prógramm á okkur um leid og Kristján er ordinn hress. Vid eigum eftir ad taka bílaleigubíl, fara í Tívolíid, Vatnsleikjagardinn, Torremolinos, skreppa til Rondos omfl. Eins gott ad litla dýrid fari ad braggast sem fyrst.

Annars bidjum vid kaerlega ad heilsa ollum.

Thangad til naest….

Bless bless hjól
Posted on July 3rd, 2007 at 11:53 pm by tommi

Þá er þessu tímabili í lífi mínu lokið.

Svo er það bara Costa del sol á eftir…..

Skrifa kannski eitthvað ef ég finn internet einhversstaðar þarna

Þangað til næst….

Afmælisbörn dagsins
Posted on July 2nd, 2007 at 10:28 am by tommi

Kristinn Soffanías Rúnarsson og Arndís Jenný Jósepsdóttir eiga bæði afmæli í dag og óska ég þeim að sjálfsögðu hjartanlega til hamingju með daginn krúttmússídúllurnar mínar.

Þangað til næst….